Enski boltinn

Gylfi tilnefndur sem leikmaður mánaðarins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór fagnar hér marki sínu.
Gylfi Þór fagnar hér marki sínu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson er einn sex leikmanna sem tilnefndir eru sem leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi hefur fengið mikið lof fyrir frammistöður sínar með Everton í síðustu leikjum. Hann skoraði þrjú mörk í septembermánuði, þar af tvö í síðasta leik.

Íslenski landsliðsmaðurinn spilaði 345 mínútur í septembermánuði, bjó til 11 marktækifæri og var með 77 prósenta skothlutfall.

Willy Boly, Eden Hazard, Alexandre Lacazette, James Maddison og Raheem Sterling eru hinir leikmennirnir sem fengu tilnefningu.

Hægt er að kjósa Gylfa Þór, eða einn hinna fimm, hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×