Þrjár af ásökununum á hendur Stóra Sam rangar: „FA átti að bíða eftir sönnunargögnunum“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. ágúst 2018 08:30 Sam Allardyce fékk að stýra enska landsliðinu í 67 daga Vísir/Getty
Rannsóknin sem varð til þess að Sam Allardyce var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Englands átti fullan rétt á sér. Þetta er niðurstaða skýrslu um málið. BBC greinir frá. Allardyce var rekinn 67 dögum eftir að hann tók við enska landsliðinu árið 2016. Ástæðan var grein Daily Telegraph þar sem uppljóstrað var að Allardyce hefði sagt viðskiptajöfrum frá því hvernig komast ætti í kringum félagsskiptareglur. Mennirnir sem sögðust vera viðskiptajöfrar innan fótboltaheimsins voru í raun blaðamenn í dulargervi. Fyrrum Everton stjórinn kvartaði við Ipso, stofnunina sem sér um að fjölmiðlar á Englandi fari eftir öllum lögum og reglum (e. Independent Press Standards Organisation). Hann lagði fram 25 kvartanir vegna greinarinnar en Ipso dæmdi blaðinu í vil í 22 af 25 atvikum. Allardyce sagði að blaðamennirnir hafi farið of langt í rannsóknavinnu sinni og blekkingin hafi ekki verið réttlætanleg. Þá hafi greinin verið ósönn og lögð fram á misvísandi hátt. Einnig sagði hann enska knattspyrnusambandið hafa verið of fljótt á sér í að reka sig eftir að greinin var birt. „Hefði enska knattspyrnusambandið haldið loforði sínu um að bíða eftir því að sjá sönnunargögn Telegraph þá hefði það séð að þessar ásakanir voru ósannar,“ sagði Allardyce í tilkynningu í gærkvöld. Skýrsla Ipso komst að þeirri niðurstöðu að grein Telegraph hafi verið „að mestu lagi rétt“ en fann þó hljómgrunn með þremur af kvörtunum Allardyce. Allardyce átti að hafa sagt að þriðji aðili gæti grætt á kaupverði leikmanna, sem hann gerði ekki. Þá átti hann tvisvar að hafa boðist til þess að segja blaðamönnunum hvernig brjóta ætti eignarhaldsreglur, sem hann gerði heldur ekki. Telegraph birti leiðréttingu á þessum atvikum. Niðurstaða skýrslunnar var þó að rannsókn Telegraph, og hversu langt hún fór, hafi verið réttlætanleg.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira