Núverandi landslag tónlistarbransans einkennist af innbyrðis keppni plötufyrirtækja um að selja eins mikið af plötum og mögulegt er í fyrstu viku útgáfunnar.
Árið 2014 urðu stakkaskipti í tónlistarbransanum, þegar ákveðið var að spilanir platna á streymisveitum skyldu gilda í gagnagrunni Billboard um hefðbundna plötusölu. 1500 spilanir á streymisveitu eru þá reiknaðar sem jafngildi einnar hefðbundinnar plötusölu.
Þessar breytingar leiddu til þess að því fleiri lög sem tónlistarmaður setur á plötuna sína, því meiri pening græðir hann, plötufyrirtækið og streymisveitan. Þess vegna hefur lagafjöldi nýrra platna almennt stóraukist.
Stútfull plata með eitthvað fyrir alla
Á Scorpion, fimmtu plötu Drakes, eru 25 lög. Einnig skiptist platan í tvo parta, A hlið, þar sem rapp er í aðalhlutverki, og B hlið, þar sem flest lög eru sungin.Umfjöllunarefni plötunnar eru fjölbreytt og ekki mjög frábrugðin eldri plötum kappans. Samband hans við foreldra sína, kvennavandamál, stöðugt ofsóknaræði, almennt mont, og hótanir í garð fjandmanna sinna koma meðal annars til sögu.
Eins og Vísir fjallaði um á dögunum, var Drake ásakaður af rapparanum Pusha T um að afneita syni sínum og fela hann frá almenningi. Á plötunni tjáir Drake sig í fyrsta skipti um málið og rappar: „Ég var ekki að fela son minn frá heiminum, heldur var ég að fela heiminn frá syni mínum.“
Drake og Jackson
Það vakti mikla athygli þegar poppgoðsögnin Michael Jackson, sem lést árið 2009, akkúrat þegar ferill Drakes var nýhafinn, kom fram á laginu „Don't Matter To Me.“ Drake hefur oft lýst aðdáun sinni á Michael Jackson og telur hann sem sína helstu fyrirmynd.Drake fékk áður óútgefin söng Michael Jacksons, sem var tekin upp árið 1983, í kringum Thriller tímabil Jacksons, frá lagahöfundinum Paul Anka, sem vann með Jackson í níunda áratugnum.
Hér má hlusta á plötuna á Spotify.One of the great nights...lots to follow! Love working with Drake! #paulankatour #recordingsession #canadian #canada #drake
A post shared by Paul Anka (@paulankaofficial) on Feb 27, 2018 at 1:27pm PST