Fótbolti

Fyrsti leikur Kolbeins i tæp tvö ár

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn er að komast á ról.
Kolbeinn er að komast á ról. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður á 82. mínútu er Nantes vann 2-0 sigur á Angers á útivelli í frönsku knattspyrnunni í dag.

Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir Kolbein sem hefur glímt við hver meiðslin á fætur öðrum. Hann lék síðast fyrir Nantes gegn Bordeaux þann 28. ágúst árið 2016.

Mikið hefur gengið á síðan þá og mikil gleðitíðindi að hann sé kominn aftur á ról eftir þessi gífurlega erfiðu meiðsli.

Hann er ekki í leikmannahóp Íslands sem spilar á HM í sumar en hópurinn var tilkynntur í gær.

Nantes er í tíunda sæti deildarinnar og siglir lygnan sjó en topplið PSG tapaði á heimavelli gegn Rennes 2-0. Þeir eru þó fyrir löngu búnir að vinna deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×