Martraðarmet féllu á Drekavellinum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. febrúar 2018 06:00
Porto steinlá á heimavelli gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. Leikmenn Liverpool léku lausum hala og buðu upp á flugeldasýningu í 0-5 sigri. Úrslitin voru söguleg á marga vegu, en enga þeirra sérstaklega skemmtilega fyrir portúgalska liðið. Þetta var stærsta tap Porto á heimavelli í Evrópukeppni frá upphafi og jafnframt í fyrsta skipti sem liðið hefur fengið á sig meira en þrjú mörk í Evrópuleik. Áður hafði stærsta heimatapið verið gegn Real Madrid, 1-3 tap í október 2003. Þá jafnaði sigur Liverpool stærsta útisigur í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Áður hafði Bayern Munich sigrað annað portúgalskt lið, Sporting, 0-5 árið 2009 og Real Madrid sigraði með sömu markatölu gegn þýska liðinu Schalke í febrúar 2014. Ekki er öll von þó úti fyrir Porto því þeirra stærsti útisigur í Evrópukeppni var 8-1 sigur og því fordæmi í sögunni fyrir sigri sem gæti komið þeim áfram í 8-liða úrslitin. Sá leikur var hins vegar árið 1990 gegn norður-írska félaginu Portadown. Mjög ólíklegt er að liðið nái álíka úrslitum gegn sjóðheitu Liverpool-liði á Anfield.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira