Birkir og félagar einum leik frá úrvalsdeildarsæti Anton Ingi Leifsson skrifar 15. maí 2018 20:30 Birkir í leik með Villa. vísir/getty Aston Villa mætir Fulham í úrslitaleiknum um sæti í ensku úrvalseildinni á næstu leiktíð en Villa hafði betur í tveimur leikjum gegn Middlesbrough í undanúrslitunum, samanlagt 1-0. Villa vann fyrri leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu 1-0 á útivelli en niðurstaðan á Villa Park í kvöld var 0-0. Villa því áfram, 1-0. Birkir Bjarnason byrjaði sem varamaður en kom inn á í uppbótartíma og hjálpaði Villa að sigla þessu í höfn. Úrslitaleikurinn milli Fulham og Aston Villa verður spilaður aðra helgi, 26. maí, á Wembley. Sigurvegarinn fylgir Wolves og Cardiff upp í ensku úrvalsdeildina. Enski boltinn