Dreifing nektarmynda innan bandaríska hersins umfangsmeiri en fyrst var talið Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. mars 2017 09:56 Hermenn dreifðu og óskuðu eftir nektarmyndum af samstarfskonum sínum í bandaríska hernum. Vísir/Getty
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og rannsóknardeild flotans (NCIS) rannsaka nú dreifingu hermanna á nektarmyndum af samstarfskonum sínum. Dreifingin reyndist umfangsmeiri en talið var í fyrstu. Talið var að dreifingin hefði einskorðast við Google Drive svæði og lokaðan Facebook hóp landgönguliða en nú hefur komið í ljós að hermenn dreifðu myndum af samstarfskonum sínum einnig á spjallborði og að hermenn úr fleiri deildum tækju þátt í athæfinu. Algengt var að fyrst væru settar inn myndir af hermönnunum fullklæddum og svo óskað eftir nektarmyndum af þeim, sem voru kallaðar „sigrar.” Oft fylgdu persónuupplýsingar um konurnar, til dæmis nöfn þeirra og í hvaða herstöð þær störfuðu.Sjá einnig: Hermenn dreifðu nektarmyndum af hermönnumFacebook hópnum, sem hét Marines United, hafði um 30 þúsund meðlimi og hefur honum nú verið lokað. Spjallborðið er þó enn aðgengilegt á netinu og eru að minnsta kosti sex sambærilegir hópar starfræktir á Facebook samkvæmt CBS.Fréttastofa BBC hefur fengið aðgang að spjallborðinu. Ein skilaboðin eru til dæmis á þann veg að því er velt upp hvort að fyrrverandi kærasti eins hermanns geti ekki útvegað nektarmyndir, því þau séu nýlega hætt saman. Forsvarsmaður samtakanna The War Horse benti yfirvöldum á myndirnar þann 30. janúar. Facebook síðum þeirra sem höfðu verið að dreifa myndum var eytt eftir að hernaðaryfirvöld höfðu samband við starfsmenn Facebook. Minnst einn landgönguliði hefur þar að auki verið rekinn úr hernum. Sá sem upprunalega deildi slóðinni að Google Drive svæðinu hefur einnig verið rekinn úr starfi sínu sem verktaki fyrir stjórnvöld í Bandaríkjunum.
Tengdar fréttir Hermenn dreifðu nektarmyndum af hermönnum Talið er að myndirnar telji hundruðum eða þúsundum. 6. mars 2017 16:20 Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Sjá meira
Hermenn dreifðu nektarmyndum af hermönnum Talið er að myndirnar telji hundruðum eða þúsundum. 6. mars 2017 16:20