Trump segir dómarann hafa farið út fyrir valdsvið sitt Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2017 08:41 Donald Trump segist munu fara með málið "alla leið“, gerist þess þörf – það er til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að dómarinn á Hawaii, sem setti í gærkvöldi lögbann á nýtt ferðabann forsetans, hafi farið út fyrir valdsvið sitt með fordæmalausum hætti. Dómarinn Derrick Watson vísaði í úrskurði sínum til „hæpinna sönnunargagna“ í rökstuðningi Bandaríkjastjórnar um að ferðabannið væri nauðsynlegt til að tryggja megi þjóðaröryggi. Sagði hann bannið fela í sér mismunun sem stríði gegn stjórnarskránni þar sem kveðið er á um að bannað sé að mismuna fólki á grundvelli trúarskoðana. Nýtt ferðabann átti að taka gildi á miðnætti.Önnur tilraun forsetans Ferðabannið meinar ríkisborgurum frá sex ríkjum, þar sem mikill meirihluti íbúa eru múslimar, að koma til Bandaríkjanna næstu níutíu dagana og bannar komu flóttafólks til landsins næstu 120 dagana. Ríkin sem um ræðir eru Sýrland, Íran, Jemen, Sómalía, Líbía og Súdan. Þetta var önnur tilraun Trump til að koma á ferðabanni en í janúar var fyrra ferðabannið dæmt ólögmætt af dómstólum. Trump segir að með ferðabanninu sé ætlunin að stöðva komu hryðjuverkamanna til Bandaríkjanna. Stjórnvöld á Hawaii höfðu lagst gegn ferðabanni forsetans og sögðu það meðal annars skaða ferðamannaiðnaðinn og getu til að laða til sín erlenda nemendur og starfsfólk.Kveðst ætla með málið „alla leið“ Trump tjáði sig um úrskurð dómarans á fundi í Nashville í Tennessee í gærkvöldi þar sem hann sagði dóminn „gallaðan“ og að dómarinn hafi „farið út fyrir valdsvið með fordæmalausum hætti“. Segir forsetinn að hann muni fara með málið „alla leið“, gerist þess þörf – það er til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Dómnum verður næst áfrýjað til sama dómstóls og dæmdi fyrra ferðabann forsetans ólögmætt í síðasta mánuði.
Tengdar fréttir Lögbann sett á nýtt ferðabann Trump Alríkisdómari í Hawaii hefur sett tímabundið lögbann á nýtt ferðabann Donald Trump Bandaríkjaforseta sem taka átti gildi eftir nokkra klukkutíma. 15. mars 2017 23:33 Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira
Lögbann sett á nýtt ferðabann Trump Alríkisdómari í Hawaii hefur sett tímabundið lögbann á nýtt ferðabann Donald Trump Bandaríkjaforseta sem taka átti gildi eftir nokkra klukkutíma. 15. mars 2017 23:33