Eva með enn eitt stóra verkefnið Stefán Þór Hjartarson skrifar 15. febrúar 2017 10:15 Eva María Daníels kvikmyndaframleiðandi er með ýmislegt á prjónunum. Vísir/Vilhelm
Eva María Daníels kvikmyndaframleiðandi er nú með á prjónunum sitt stærsta verkefni en það er myndin Hold the Dark sem mun skarta meðal annars Alexander Skarsgård, James Badge Dale og Jeffrey Wright og um leikstjórn sér Jeremy Saulnier. „Þetta verkefni er byggt á skáldsögunni Hold the Dark eftir William Giraldi sem ég keypti réttinn á fyrir rúmu ári og þróaði með Jeremy Saulnier – við höfum verið að velja í hlutverk síðustu mánuði. Nú erum við sem sagt búin að tilkynna hverjir verða aðalleikararnir í þessu. Tökur hefjast svo 27. febrúar í Calgary, Kanada. Við skjótum líka smá hluta í Marokkó,“ segir Eva María Daníels kvikmyndaframleiðandi en nýjasta verkefnið hennar er myndin Hold the Dark. Með aðalhlutverk munu fara þeir Jeffrey Wright, Alexander Skarsgård og James Badge Dale.Hvernig kom það til að þú framleiðir mynd upp úr þessari bók? „Bókin kom til mín með Jeremy, hann er svona leikstjóri sem mig hefur lengi langað til að vinna með, eða síðan ég sá Blue Ruin. Hann og bókin komu til mín saman. Þetta er alveg æðisleg bók, ótrúlega spennandi og það er ekki hægt að leggja hana frá sér. Hún fjallar um lítið þorp í Alaska þar sem börn hafa verið tekin af úlfum og sérfræðingur er kallaður inn til að rannsaka málin. Hann finnur sig fljótt í hringiðu á milli sín, sorgmæddrar móður sem hverfur og eiginmanns hennar sem fer yfirum eftir að hann snýr til baka til þorpsins frá stríðinu í Írak og fréttir af hvarfi sonar síns. Handritshöfundurinn Macon Blair, sem hefur unnið með Jeremy bæði að Blue Ruin og Green Room, skrifaði alveg meiriháttar handrit, ótrúlega sterkt handrit. Þetta þróaðist allt mjög hratt.“Er þetta stærsta verkefnið þitt hingað til? „Já, þetta er langstærsta mynd sem ég hef þróað og framleitt – kostnaðaráætlunin er sautján milljónir dollara, þannig að þetta er á miklu stærri skala en það sem ég hef gert áður sem er náttúrulega mjög spennandi.“Hefurðu unnið með þessum leikurum áður? „Ég hef unnið með Alexander [Skarsgård] áður, við unnum að What Maisie Knew en ég hef ekki unnið með hinum. Þeir eru alveg fullkomnir fyrir hvert hlutverk – það er alveg búið að taka sex mánuði að velja í hlutverkin svo að allt sé alveg fullkomið. Við erum öll ánægð með hvernig þetta er búið að koma saman – það er búið að taka sex mánuði að „casta“ fyrir myndina og við erum öll mjög ánægð með hvernig þetta er búið að koma saman.“Hvað er svo næst á dagskrá hjá þér? „Ég hef verið að þróa nokkrar myndir með A24 síðastliðin tvö ár – maður veit samt aldrei hvenær hvert verkefni fer í gang. Við erum að vinna með nokkrum frábærum leikstjórum eins og Cary Fukunaga, J.C. Chandor og James Ponsoldt og síðan er ég með eitt verkefni með Amy Adams sem er byggt á skáldsögu eftir Steve Martin sem heitir An Object of Beauty og það handrit er alveg tilbúið og við erum bara að bíða eftir rétta glugganum til að geta tekið myndina. Það virðist vera það næsta sem mun verða tilbúið. Annars veit maður aldrei, það tekur svo langan tíma að þróa. Stundum koma verkefni sem vinnast mjög fljótt en önnur tekur kannski mörg ár að vinna, þannig að þetta er svolítið lotterí. Síðan er ég einn af framleiðendum af mynd í frumsýningu núna á Berlínahátíðinni og kemur í bíóhús fimmta maí. Hún heitir The Dinner og er byggð á skáldsögu Hermans Koch. Oren Moverman skrifar handritið og leikstýrir, við erum svo með Richard Gere í aðalhlutverki, Lauru Linney, Steve Coogan, Rebeccu Hall og Chloe Sevigny.“
Bíó og sjónvarp Mest lesið Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Lífið Bob Weir látinn Lífið Minnast Magnúsar Eiríkssonar: „Góða ferð, elsku vinur“ Lífið „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Lífið Magnús Eiríksson er látinn Lífið Kynntist ástinni á Spáni eftir að hafa verið orðin leið á að vera ein Lífið RÚV hættir við Söngvakeppnina Lífið Gagnrýni ársins 2025: Jólahelvíti, ómerkilegir þættir og vonbrigði á stóra sviðinu Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech Lífið Fleiri fréttir Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Fáum við einn þátt í viðbót af Stranger Things? Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Béla Tarr er látinn Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Enginn Óskar til Íslands 2026 Bestu myndir Robs Reiner Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sjá meira