Kveikti í verslun Indverja sem hann taldi Araba Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 12. mars 2017 21:04 Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/getty
Maður í Flórída gerði tilraun til þess að kveikja í verslun í eigu Indverja í þeirri trú að eigendurnir væru Arabar. Washington Post greinir frá. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn að hann teldi réttast að „bola öllum Aröbum burt úr landinu.“ Brennuvargurinn er 64 ára gamall Bandaríkjamaður að nafni Richard Leslie Lloyd. Honum tókst ekki ætlunarverk sitt en lögregla var kölluð á vettvang þegar nærstadda fór að gruna að ekki væri allt með felldu. Hafði Lloyd þá kveikt í ruslagámi við búðina sem hann hafði stillt upp fyrir framan aðalinngang hennar. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins án mikilla vandkvæða. Í lögregluskýrslu kemur fram að Lloyd hefði látið sjá sig í búðinni nokkrum dögum fyrr. Hann hafði ekki fundið uppáhalds appelsínusafann sinn þar og komist í talsvert uppnám. Síendurtekin atvik af svipuðu tagi hafa komið upp að undanförnu. Í síðustu viku var 39 ára maður skotinn í Washington-fylki af manni sem taldi hann vera Araba. Í síðasta mánuði var skotið á tvo Indverja í Kansas með þeim afleiðingum að annar þeirra lést. „Farið úr landinu mínu,“ hrópaði byssumaðurinn áður en hann tók í gikkinn. Árásarmaðurinn taldi að mennirnir væru frá Íran. Samtök Bandaríkjamanna af suður-asískum uppruna birtu skýrslu síðla árs 2016 þar sem fram kom að hatursglæpir í Bandaríkjunum, í garð asískra innflytjenda, hefðu aukist um 34 prósent í fyrstu vikunni eftir forsetakosningarnar 8. nóvember.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira