Telja Svía hafa greitt mútur vegna sölu herflugvéla Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 11. mars 2017 07:00 Fyrrverandi forseti Brasilíu í stuði. NORDICPHOTOS/AFP
Fyrrverandi forseti Brasilíu, Lula da Silva, vill að Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, komi til Brasilíu til að bera vitni um þátt hans í sölunni á JAS-herflugvélum. Frá því að Verkamannaflokkurinn missti völdin í Brasilíu í fyrra þegar Dilma Rousseff forseti neyddist til að fara frá hafa Lula da Silva verið birtar fjórar ákærur, að því er Dagens Nyheter greinir frá. Hann er sakaður um að hafa þegið þakíbúð að gjöf frá byggingafyrirtæki, fengið viðgerð á sumarbústað og að hafa skipulagt greiðslur frá öðru byggingafyrirtæki til hliðhollra stjórnmálamanna. Ástæða þess að Lula da Silva er einnig ákærður fyrir brot í sambandi við útflutning Svía á JAS-herflugvélunum er sú að saksóknarar fundu sem samsvarar 84 milljónum íslenskra króna á reikningi yngsta sonar hans sem var greiðsla frá einstaklingi sem dæmdur hafði verið fyrir spillingu. Verjandi Lula da Silva segir soninn hafa fengið féð annars staðar frá. Saksóknarar telja að Lula da Silva, Dilma Rousseff og Stefan Löfven hafi gengið frá sölu JAS-herflugvélanna á hótelherbergi við útför Nelsons Mandela í Suður-Afríku 2013. Löfven var þá ekki orðinn forsætisráðherra Svíþjóðar. Það er mat saksóknaranna að Lula da Silva hafi nýtt sér stöðu sína sem fyrrverandi forseti og tekið við fé til að telja Rousseff á að kaupa herflugvélarnar. Verjandi da Silva, Cristiano Zanin, segir að í tölvupósti sem saksóknarar hafa undir höndum skrifi Löfven að hann vilji hitta da Silva við útför Mandela. Það sé enginn glæpur. Fundur þeirra hafi verið á persónulegur en ekki viðskiptafundur. Löfven kveðst ekki hafa setið á hótelherbergi og fundað með forsetunum fyrrverandi. Hann hafi ekki fengið boð frá dómara um að koma til Brasilíu og hann hyggst ekki fara þangað. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira