Facebook tilkynnti BBC til lögreglunnar vegna barnakláms Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2017 13:30 Blaðamennirnir höfðu fundið hópa á Facebook þar sem barnaníðingar dreifðu kynferðislegum myndum af börnum og tilkynntu þá til Facebook. Vísir/Getty
Starfsmenn Facebook tilkynntu nýverið blaðamenn breska ríkisútvarpsins til lögreglunnar fyrir dreifingu á barnaklámi. Blaðamennirnir höfðu þá verið að reyna að fá Facebook til að fjarlægja tugi kynferðislegra mynda af börnum af samfélagsmiðlinum, án góðs árangurs. Samfélagsmiðillinn hefur orðið fyrir gagnrýni fyrir viðbrögð sín við ábendingum um barnaklám. Blaðamennirnir höfðu fundið hópa á Facebook þar sem barnaníðingar dreifðu kynferðislegum myndum af börnum. Þá voru þeir að vinna að frétt um varnir Facebook gegn barnaníð og kynferðislegum myndum af börnum. Eftir að hafa tilkynnt hundrað myndir og færslur til Facebook, með þar til gerðu tóli á samfélagsmiðlinum, voru einungis átján af myndunum fjarlægðar. Ein af myndunum sem voru ekki fjarlægðar var mynd úr myndbandi þar sem verið var að misnota barn. Blaðamennirnir höfðu einnig fundið fimm dæmda barnaníðinga á Facebook, sem mega ekki vera þar inni samkvæmt reglum samfélagsmiðilsins, og tilkynnt þá til fyrirtækisins. Aðgöngum þeirra var ekki lokað. Hér má sjá umfjöllun BBC.Viðbrögð sem vekja furðu Fyrst var óskað um viðtali við Facebook árið 2015 og svo aftur nú í kjölfar nýjustu rannsóknarinnar sem hófst fyrir um ári síðan. Það var samþykkt með því skilyrði að BBC myndi senda Facebook dæmi um myndir sem hefðu verið tilkynntar en ekki verið fjarlægðar. Blaðamennirnir sendu því nokkrar myndir til Facebook til að sýna þeim um hverslags myndir væri að ræða og til undirbúnings fyrir viðtalið um varnir Facebook gegn barnaklámi. Starfsmenn Facebook brugðust við með því að tilkynna blaðamennina til lögreglu og hætta við viðtalið. Þá sendi fyrirtækið tilkynningu til BBC þar sem fram kom að farið hefði verið yfir efnið sem þeir fengu sent. Allt efni sem hafi brotið gegn reglum samfélagsmiðilsins hafi verið fjarlægt í kjölfarið. Þá segir í tilkynningunni að það sé ólöglegt að dreifa barnaklámi og því hafi blaðamennirnir verið tilkynntir til lögreglunnar. Facebook tilkynnti einnig efni á samfélagsmiðlinum til lögreglu.Efasemdir um varnir Facebook Formaður nefndar breska þingsins um fjölmiðla, Damian Collins, segir atvikið hafa vakið upp miklar efasemdir um varnir Facebook. Þá segir hann það vaka furðu sína að fyrirtækið hafi tilkynnt blaðamenn til lögreglu, þegar þeir hafi verið að reyna að hjálpa Facebook að taka til á samfélagsmiðlinum. Talskona Barnaverndarsamtaka Bretlands segir að með því að fjarlægja ekki efnið sé Facebook að brjóta gegn samningum sem fyrirtækið hefur gert um verndun barna.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira