Sautjándi sigur City í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sergio Agüero skoraði tvö mörk.
Sergio Agüero skoraði tvö mörk. vísir/getty
Manchester City vann sinn sautjánda leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Bournemouth, 4-0, á Etihad í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Með sigrinum náði City 14 stiga forskoti á toppi deildarinnar. Manchester United getur minnkað forskot City aftur niður í 11 stig með sigri á Leicester City í kvöld.

Sergio Agüero kom City yfir með skalla eftir sendingu frá Fernandinho á 27. mínútu. Þetta var hundraðasta mark Agüeros á Etihad.

Eftir átta mínútna leik í seinni hálfleik lagði Agüero upp mark fyrir Raheem Sterling.

Argentínumaðurinn skoraði sitt annað mark á 79. mínútu og varamaðurinn Danilo negldi svo síðasta naglann í kistu Bournemouth þegar hann skoraði fjórða mark City fimm mínútum fyrir leikslok.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira