Liverpool í fjórða sætið eftir sigur

Dagur Lárusson skrifar
Sex leikir hófust kl 15:00 í ensku úrvaldsdeildinni í dag en þeim var að ljúka rétt í þessu og þar á meðal viðureign Brighton og Liverpool.

Liverpool fór í heimsókn til nýliða Brighton en Liverpool hefur stundum átt erfitt uppdráttar gegn nýliðum á útivelli en það var ekki raunin í dag.

Emre Can kom Liverpool yfir með skalla á 31.mínútu leiksins eftir hornspyrnu frá Coutinho. Liverpool voru síðan ekki lengi að því að bæta við öðru markinu því aðeins mínútu seinna skoraði Roberto Firmino eftir frábæra skyndisókn.

Staðan var 0-2 í hálfleik og í seinni hálfleiknum héldu Liverpool áfram að sækja og skilaði það sér snemma í seinni hálfleik þegar Roberto Firmino skoraði aftur eftir laglega skyndisókn og undirbúning frá Salah.

Coutinho vildi vera með í fjörinu og skoraði hann tvö mörk á síðustu 5 mínútum leiksins og það fyrra kom beint úr aukaspyrnu.

Lokatölur leiksins því 5-1 fyrir Liverpool og eru þeir komnir með 29 stig í 4.sæti deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Brighton&Hove Albion 1-5 Liverpool

Everton 2-0 Huddersfield  

Leicester City 1-0 Burnley

Stoke City 2-1 Swansea City

Watford 1-1 Tottenham Hotspur

WBA 0-0 Crystal Palace

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira