Ölvun í borginni í nótt: Kona grunuð um ölvun við stjórn hests Kjartan Kjartansson skrifar 15. júlí 2017 07:16 Ölvun kom við sögu í mörgum þeim málum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna í nótt. Vísir/Eyþór
Töluvert af málum þar sem ölvun kom við sögu komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar á meðal var kona sem datt af hestbaki í Mosfellsbæ. Hún er grunuð um „ölvun við stjórn hests“ samkvæmt dagbók lögreglunnar. Tilkynnt var um óhappið á miðnætti og var konan flutt með sjúkrabíl á slysadeild. Meiðsl hennar eru þó ekki talin alvarleg. Tæpum tveimur tímum áður hafði ölvaður karlmaður verið handtekinn á heimili sínu í austurborginni. Hann er grunaður um heimilisofbeldi og var vistaður í fangageymslu í nótt.Veitti lögreglumönnum harða mótspyrnu í sólahringsverslunRétt eftir miðnætti voru lögreglumenn kvaddir til að aðstoða við að vísa tveimur ölvuðum mönnum úr sólahringsverslun í austurborginni. Þeir hafi verið að angra og ógna starfsfólki og viðskiptavinum. Lögregla hafði tal af mönnunum og gaf þeim fyrimæli um að yfirgefa staðinn. Annar mannanna hlýddi engu og veitt harða mótspyrnu við handtöku, að sögn lögreglu. Hann var að lokum yfirbugaður og fluttur á lögreglustöð.Braut gegn konu á skemmtistað og réðist á dyraverðiEftir klukkan tvö í nótt var maður handtekinn í annarlegu ástandi á skemmtistað í miðborginni. Sá er grunaður um kynferðisbrot gagnvart konu. Hann er sagður hafa ráðist á dyraverði sem hugðust vísa honum út í framhaldinu. Maðurinn fékk að gista fangageymslu en málið verður rannsakað frekar. Á fjórða tímanum var tilkynnt um ölvaðan mann sem var með mikil læti og ónæði í íbúðargötu í miðborginni. Lögregla segir hann hafa verið í slæmu ástandi vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu. Hann var handtekinn fyrir óspektir á almannafæri og gisti fangageymslu. Að lokum voru fjórir ökumenn handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeim var öllum sleppt að lokinni sýnatöku.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira