Erlent

Stórveldi hyggjast ekki beita Rússa þvingunum

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Utanríkisráðherrar Japans, Þýskalands og Bretlands sjást hér á bak við Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Utanríkisráðherrar Japans, Þýskalands og Bretlands sjást hér á bak við Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. vísir/epa
G7 ríkin höfnuðu í gær tillögu Breta um nýjar viðskiptaþvinganir gegn Rússum vegna stuðnings þeirra við ríkisstjórn Bashars­ al-Assad í Sýrlandi. Var krafan sett fram í kjölfar efnavopnaárásar á bæinn Khan Sheikhoun sem talið er að sýrlenski herinn hafi staðið að. Alls féllu 89 í árásinni.

Utanríkisráðherrar G7 ríkjanna, Bandaríkjanna, Bretlands, Japans, Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og Kanada, auk Evrópusambandsins, funduðu á Ítalíu í gær.

Angelino Alfano, utanríkisráðherra Ítalíu, sagði ríkin frekar vilja leysa úr deilunni með diplómatískum hætt. „Við teljum Rússa hafa það vogarafl sem þarf til að fá Assad til að standa við vopnahléssamninga sem hafa verið gerðir,“ sagði Alfano.

Í kjölfar efnavopnaárásarinnar réðust Bandaríkjamenn á Shayrat-herflugvöllinn í Sýrlandi. Talið er að efnavopnaárásarliðið hafi flogið þaðan og til Khan Sheikhoun. Var 59 Tomahawk-eldflaugum skotið á flugvöllinn.

James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig um gagnárásina í gær. Sagði hann að árásin hefði ónýtt töluvert af eldsneytis- og skotfærabirgðum Sýrlandshers, skaðað loftvarnarkerfi þeirra og eyðilagt fimmtung herflugvéla.

Á blaðamannafundi í gær sagði Tillerson að sú árás hefði verið nauðsynleg til að tryggja öryggi Bandaríkjanna.

„Við viljum ekki að efnavopnabúr sýrlenska hersins falli í hendur ISIS eða annarra hryðjuverkasamtaka sem gætu viljað ráðast á Bandaríkin eða bandamenn okkar,“ sagði Tillerson.

„Bandaríkin sjá ekki fyrir sér að ríkisstjórn Assads geti setið lengur þar sem hún hefur tapað réttmæti sínu með þessum árásum,“ sagði hann enn fremur.

Um helgina tók Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, í sama streng og sagði Bandaríkin vilja koma Assad frá. Sama dag sagði Tillerson það ekki forgangsatriði. Aðalatriðið væri að sigrast á ISIS.

Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta virðist því hafa skipt um skoðun. Sjálfur sagði Trump áður en hann tók við embætti að Bandaríkin ættu ekki að standa að því að koma fleiri leiðtogum Mið-Austurlanda frá völdum.

Eftir fundinn á Ítalíu hélt Tillerson til Moskvu til fundar við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Greinandi BBC segir ólíklegt að Tiller­son takist að fá Rússa til að snúa baki við Assad þar sem Sýrlendingar eru helstu bandamenn Rússa í Mið-Austurlöndum. Einnig hafi Rússar varið miklum tíma og fé í stuðning sinn við Assad.


Tengdar fréttir

Á sjötta tug fórust í efnavopnaárásinni

Talið er að saríngasi hafi verið varpað á íbúa sýrlenska bæjarins Khan Sheikhoun. Sýrlenski herinn neitar því að hafa beitt efnavopnum. Stjórnarandstaðan fer fram á tafarlausa rannsókn öryggisráðs SÞ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×