„Faðir internetsins“ með áætlun gegn gervifréttum Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2017 10:36 Tölvunarfræðingurinn Tim Berners-Lee hefur áhyggjur af gervifréttum sem dreift er á netinu. Vísir/Getty
Halda verður áfram að hvetja samfélagsmiðla og leitarvélar á netinu til þess að berjast gegn útbreiðslu „gervifrétta“, að sögn Tim Berners-Lee sem gjarnan er nefndur faðir veraldarvefsins. Gervifréttir hafa verið í deiglunni, ekki síst í kjölfar forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Talið er að lygar og áróður sem settur var fram sem fréttir og dreift á netinu hafi jafnvel ráðið úrslitum í kosningunum síðasta haust. Í opnu bréfi í tilefni af 28 ára afmæli internetsins leggur Berners-Lee fram fimm ára áætlun í ljósi þeirra áhyggna sem hann hefur af því hvernig verið er að nota netið um þessar mundir, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Þó að hann vilji að samfélagsmiðlafyrirtæki og leitarvélar leggi sitt af mörkum varar Berners-Lee við því að miðstýrð stofnun ákveðið hvað sé satt og hvað ekki. Viss algrím sem notuð eru á samfélagsmiðlum og leitarvélum geti aukið vægi æsifrétta sem er ætlað að koma lesandanum á óvart eða hneyksla á kostnað sannleikans. Berners-Lee segir að efni af þessu tagi get breiðst út eins og eldur í sinu. Þá telur hann vísbendingar um að óprúttnir aðilar séu farnir að beita beinum pólitískum auglýsingum á netinu á ósiðlegan hátt. Tilgangurinn sé til dæmis að letja fólk til þess að kjósa eða beina því inn á gervifréttasíður. Á meðal tillagna hans er að netfyrirtæki taki upp áskriftargjöld eða annars konar gjaldtöku til þess að komast af án auglýsingatekna af þessu tagi.
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Fleiri fréttir Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Sjá meira