Árásarmaðurinn á Orly var á eftirlitslista 18. mars 2017 14:04 Flugfarþegar sem voru fluttir úr flugstöðinni í morgun bíða eftir að hún opni aftur. Vísir/EPA
Búið er að opna hluta Orly-flugvallar við París aftur eftir að maður sem reyndi að hrifsa skotvopn af hermanni var skotinn til bana þar í morgun. Maðurinn var á eftirlitslista yfir öfgafulla einstaklinga. Hann er sagður eiga langan sakaferil að baki.Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir talsmanni franska hersins að maðurinn hafi reynt að hrifsa byssu af hermanni í „gríðarlega ofbeldisfullri árás“. Konan náði að halda í byssuna sína en tveir félagar hennar skutu manninn til bana. Áður hafði árásarmaðurinn skotið á lögreglumenn sem stöðvuðu hann við umferðareftirlit norðan við París. Flúði hann af vettvangi og skildi bíl sinn eftir í úthverfi í suðurhluta borgarinnar. Þar er talið að hann hafi rænt bíl af konu með vopnavaldi. Sá bíll fannst síðar við Orly-flugvöll. Lögreglan segir að maðurinn hafi verið 39 ára gamall. Hann hafi meðal annars hlotið dóma fyrir vopnuð rán. Faðir mannsins og bróðir hafa verið færðir í varðhald en það er venjan þegar grunur leikur á hryðjuverkaárásum. Uppákoman hefur raskað flugferðum til og frá Orly í dag. Búið er að opna vesturflugvallarbygginguna en suðurbyggingin þar sem maðurinn var skotinn til bana verður að líkindum lokuð allan daginn í dag. Þrátt fyrir að vesturbyggingin hafi verið opnuð hafa miklar tafir verið og mörgum flugferðum aflýst.
Tengdar fréttir Skotinn til bana á Orly-flugvelli eftir að hafa tekið vopn af hermanni Nokkur svæði á flugvellinum rýmd. 18. mars 2017 08:55 Sami maður skaut á lögreglu norður af París í morgun Ráðherra hefur staðfest að maðurinn sem var skotinn til bana á Orly-flugvelli við París hafi skömmu áður skotið á lögreglumenn norður af borginni og rænt bíl. 18. mars 2017 10:34 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sjá meira
Skotinn til bana á Orly-flugvelli eftir að hafa tekið vopn af hermanni Nokkur svæði á flugvellinum rýmd. 18. mars 2017 08:55
Sami maður skaut á lögreglu norður af París í morgun Ráðherra hefur staðfest að maðurinn sem var skotinn til bana á Orly-flugvelli við París hafi skömmu áður skotið á lögreglumenn norður af borginni og rænt bíl. 18. mars 2017 10:34