Fátækt ekki aumingjaskapur Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. júlí 2017 21:30 Ásta Dís Guðjónsdóttir flutti ræðu um málefni fátækra á Sumarþingi fólksins. Ásta Dís „
Það velur sér enginn að vera fátækur,“ segir Ásta Dís Guðjónsdóttir, forsvarskona Samtaka fólks í fátækt. Hún var á meðal þeirra sem hélt framsögu á Sumarþingi fólksins sem fór fram í gær. Fundurinn var fjölsóttur en Ásta telur að um 850-900 manns hafa mætt í salinn í Háskólabíó. Ásta Dís fjallaði um fátækt í áhrifaríkri ræðu sem hún flutti. Hún talaði um þá skömm sem virðist umlykja fátækt. „Það er óneitanlega staðreynd að fátækt hrifsar til sín mennsku okkar svo að hlutskiptið verður vonleysi, skömm og þjáning. Þeir sem ekki þekkja fátækt af eigin raun segja að hún sé ekki samfélagsmein heldur persónuleg klemma vanhæfra, efnalausra einstaklinga sem kunna bara ekki að „pluma sig,” segir Ásta. Að sögn Ástu ættu allir að vita, sem hefðu snefil af skilningi á málefnum fátækra, að það sé ekki hægt að komast upp úr fátækt með því að neita sér um fríðindi og leggja harðar að sér. Segir kerfið vinna gegn fátækumÞað kostar meira að vera fátækur en ríkur, segir Ásta. Efnað fólk geti auðveldlega svikist undan skyldum sínum við samfélagið. “Kerfið er nefnilega búið til af hinum ríku og vinnur stanslaust gegn hinum fátæku,” segir Ásta.Ásta Dís segir að það þurfi kjark, áræðni, úthald, styrk og útsjónarsemi að takast á við hvern einasta dag í fátækt.Vísir/GettyFátækt ekki aumingjaskapurÁsta er ötul baráttukona fyrir því að þeir efnaminni varpi frá sér skömminni. „Fátækt er ekki aumingjaskapur því það þarf kjark, áræðni, hörku, úthald, styrk og útsjónarsemi til að takast á við hvern einasta dag í jafn erfiðum aðstæðum og fátækir þurfa að takast á við – einangraðir á bak við skömmina sem fylgir fátækt í ríku samfélagi því þannig þurrkast varaforði einstaklingsins hraðar út af lífsbatterýinu og við endum í heilsufarslegri og andlegri kreppu ásamt félagslegri einangrun,“ segir Ásta. Í samtali við Vísi segir Ásta brýnt að fólk geri sér grein fyrir að fátækt er raunveruleiki á Íslandi. „Það er til fátækt á Íslandi og hún er ekki bara einkamál þeirra sem búa við fátæktina.“ Það séu pólitískar ákvarðanir sem geri það að verkum að fólk lendi í fátæktargildru.Að fá að standa jafnfætis öðrum Ásta segir að þetta snúist ekki bara um það eitt að lifa af. „Þú þarft að eiga líf sem er þess virði að lifa,“ segir Ásta sem bætir við að mannsæmandi líf þýði að líða vel og að standa jafnfætis öðrum í samfélaginu. Að sögn Ástu einkennist viðhorfið í samfélaginu af því að fólk líti svo á að fátækir þurfi einfaldlega að herða sig. Það sé viðhorf sem sé byggt á miklum misskilningi því Ásta Dís bendir á að fátækir geti ekki keypt húsnæði þrátt fyrir að það hagræði í matarinnkaupum. „Stundum finnst fólki eins og maður vilji bara taka af þeim sem eru ríkir. Þetta snýst ekkert um það. Með meiri jöfnuði tryggjum við að þeir verst settu í samfélaginu – hvort sem það eru eldri borgarar, fatlaðir eða fátækir – geti átt mannsæmandi líf,“ segir Ásta að lokum. Ásta Dís segir Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa staðið fyrir samkomunni. Ásta vill þó koma því á framfæri að Pepp Ísland: Samtök fólks í fátækt tengist ekki neinum stjórnmálaflokki. Samtökin leitist við að berjast fyrir hagsmunum fátækra með því að vinna með öllum flokkum.
Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Skoða hvort flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fleiri fréttir Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Skoða hvort flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Sjá meira