Maccabi Tel-Aviv, lið Viðars Arnar Kjartanssonar, komst í dag áfram í Evrópudeild UEFA.
Maccabi skellti þá Tirana, 0-3, í Albaníu og vann rimmu liðanna 5-0 samanlagt.
Ísraelska liðið gat leyft sér að hvíla okkar mann allan leikinn og Viðar hafði það því náðugt á plankanum.
Maccabi mun mæta annað hvort KR eða SJK í næstu umferð en sá leikur stendur nú yfir.
Viðar og félagar komnir áfram | Mæta þeir KR?
