Tár sást á hvörmum tölvuleikjaspilara Starri Freyr Jónsson skrifar 18. nóvember 2017 10:00 Þorkell Harðarson, varaformaður Lúðrasveitar Svans og klarinettleikari hennar. Vísir/Vilhelm
Lúðrasveitin Svanur blæs til tölvuleikjatónleikaveislu í dag laugardag í Norðurljósum í Hörpu. Þar mun sveitin leika fjölda laga úr ýmsum tölvuleikjum auk þess sem sýnd verða áhrifamikil myndskeið úr leikjunum á stóru tjaldi fyrir aftan lúðrasveitina á meðan tónleikarnir standa yfir. Sveitin hélt samskonar tónleika haustið 2013 sem vöktu mikla lukku og segir Þorkell Harðarson, varaformaður Lúðrasveitar Svans og klarinettleikari hennar, að fjöldi beiðna um aðra tónleika hafi borist þeim á undanförnum fjórum árum. „Tónleikarnir 2013 spurðust vel út á meðal leikjasamfélagsins og var uppselt. Þeir drógu líka að sér annars konar áhorfendur en mæta venjulega á lúðrasveitartónleika og sáust stundum tár á hvörmum hörðustu spilararanna. Tónleikarnir voru einnig afar ánægjulegir fyrir okkur því það er auðvitað lang skemmtilegast að spila fyrir fullu húsi og einnig fyrir nýja áheyrendur.“Link og Zelda, Megaman og fleiri klassískar persónur úr heimi tölvuleikja koma við sögu á tónleikunum.Nettur leiði Hugmyndina að tónleikunum 2013 má rekja til þess að yngri meðlimir sveitarinnar höfðu þjáðst af nettum leiða á lúðrasveitarklassíkinni og langaði til að brjóta upp hið hefðbundna form tónleika af þessu tagi. „Þetta mætti mismikilli hrifningu eldri kynslóðarinnar sem sem sumir hafa spilað með sveitinni í áratugi. Útkoman var afar góð og þeir sem voru hvað mest á móti því að halda tölvuleikjatónleika voru hvað hrifnastir af útkomunni.“ Á tónleikunum í dag mun sveitin flytja tónlist úr eftirfarandi leikjum: Fallout 4, Undertale, Journey, Megaman, Monkey Island, Ducktales, Portal, Battlefield 1942, Elder Scrolls, Zelda, Super Mario Bros., Halo, Civilization, Kingdom Hearts, Final Fantasy, Myst, Advent Rising og World of Warcraft. „Hvað sýninguna meðfram tónlistinni varðar er búið að vinna dag og nótt í að framleiða myndskeið úr öllum þessum leikjum sem eiga að fylgja tónlistinni. Það er auðvitað svolítið mál en við höfum gert þetta áður, bæði á tölvuleikjatónleikunum fyrri og síðan vorum við með kvikmyndatónlistarþema fyrir stuttu. Þar rann þetta ljúft í gegn. Kannski göngum við lengra á næstu tölvuleikjatónleikum og verðum í búningum úr leikjunum?“Kraftmikið hljóðfæri Lúðrasveitin Svanur er ein elsta hljómsveit landsins, stofnuð árið 1930 og hefur starfað sleitulaust síðan þá. Svanurinn hefur sett brag sinn á bæjarlíf Reykvíkinga með því að koma fram í skrúðgöngum og kröfugöngum í áratugi, ásamt hefðbundnu spilamennskum við styttu Jóns Sigurðssonar á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Síðustu árin hefur sveitin verið í fremstu röð hljómsveita af þessu tagi og sett mikinn metnað í stóra tónleika sína sem eru jafnan tveir á ári. „Lúðrasveitir eru oft settar í ferköntuð box sökum fyrirfram ákeðinnar myndar sem fólk hefur af þeim. En í raun erum við óræður margflötungur sem hægt er að sveigja í ýmsar óvæntar áttir. Góð lúðrasveit eitt kraftmesta hljóðfæri sem völ er á fyrir tónskáld og skemmtikrafta sem nálgast okkur með opinn huga.“ Tónleikarnir hefjast kl. 14 í dag. Nánari upplýsingar og miðasölu má nálgast á harpa.is.
Leikjavísir Menning Mest lesið Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Gagnrýni Kossaflens á klúbbnum Lífið Dreymir um að finna fólkið sem gaf hana frá sér Lífið „Finnst við oft gleyma þeim sem geta ekki tjáð sig“ Lífið Sárþjáður Eyfi sendur með sjúkrabíl og skellt í aðgerð Lífið Stjörnulífið: „Mesta milf Íslands“ Lífið „Ég hef tapað vinum á því að eiga peninga“ Lífið Enn veldur Britney áhyggjum Lífið Herra stal hund Sunnevu og mætti með hann í Bannað að hlæja Lífið Hringdi í mömmu sem sagði einfaldlega: „Nói, nú kemur þú heim“ Áskorun Fleiri fréttir Borgarstjóri og bombur í brjálaðri GusGus-gleði Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Íslenskar stjörnur heiðra Bítlana Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Djúpt snortinn yfir viðbrögðum samfélagsins Hneig niður í miðju lagi Joy Orbison treður upp í Austurbæjarbíói Samdi lag um ást sína á RIFF Söguleg rappveisla í Laugardalnum Laufey treður upp með Justin Bieber Árný Margrét ómaði á tískupöllum í New York Írar sniðganga Eurovision taki Ísrael þátt „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Sjá meira