Fyrsta skóflustungan tekin að Skarðshlíðarskóla Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 17:06 Frá fyrstu skóflustungunni í dag - Guðlaug Kristjánsdóttir, Alexander Dýri Eyjólfsson, Kristbjörg Eva Arnarsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir.
Fyrsta skóflustungan að byggingu Skarðshlíðarskóla í Vallarhverfinu í Hafnarfirði var tekin kl. 15 í dag. Skólinn er áttundi grunnskóli bæjarins en áætlanir gera ráð fyrir að skólinn verði eingöngu byggður fyrir eigið fé Hafnarfjarðar. Samkvæmt fréttatilkynningu verða það einkum tekjur af lóðasölu. Það voru þær Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs og formaður fræðsluráðs og Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður fjölskylduráðs sem tóku fyrstu skóflustunguna ásamt þeim Alexander Dýra Eyjólfssyni elsta nemenda skólans og þeim yngsta, Kristbjörgu Evu Arnarsdóttur. ,,Þetta er bæði mikilvægur og ánægjulegur áfangi í hafnfirskri skólasögu,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs og fræðsluráðs við skóflustunguna í dag. ,,Vil ég óska tilvonandi nemendum, foreldrum, starfsmönnum og Hafnfirðingum öllum til hamingju og vona að gæfa eigi eftir að fylgja framkvæmdinni og skólastarfinu öllu í framtíðinni.“ Skarðshlíðarskóli hefur nú þegar hafið starfsemi en kennslan fer fram í safnaðarheimili Ástjarnarkirkju á meðan framkvæmdir við fyrsta áfangann standa yfir. 96 nemendur eru skráðir í skólann þetta skólaár en þegar hann verður fullbyggður verður hann tveggja hliðstæðu grunnskóli með 400 til 500 nemendur. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ er gert ráð fyrir fjögurra deilda leikskóla fyrir 80 til 90 nemendur og auk þess útibúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem mun geta annað allt að 200 nemendum. Gert er ráð fyrir að fyrsta áfanga verði lokið haustið 2018 og þá flytji grunnskólinn í húsnæðið en húsnæði fyrir leikskólann á að verða tilbúið sumarið 2019. Stefnt er að því að skólinn verði fullbyggður sumarið 2020. Grunnskóli, leikskóli, íþróttahús og tónlistarskóli verður samtals 8.910 m2.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira