Zlatan: Guardiola er barnalegasti þjálfari sem ég hef haft Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. desember 2017 12:30 Zlatan og Pep á sínum tíma hjá barcelona. vísir/afp
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, segir að Pep Guardiola sé barnalegasti þjálfari sem hann hafi verið hjá um ævina en Pep stýrði Svíanum hjá Barcelona eina leiktíð frá 2009-2010. Zlatan var fljótur að koma sér burt sumarið 2010 en honum fannst allt hjá Barcelona snúast um Messi og reyndi að ræða það við Pep án árangurs. Svíinn fór vel af stað hjá Barcelona en hann fór að byrja meira á bekknum þegar að Guardiola skipti um leikkerfi. Þrátt fyrir allt skoraði Zlatan 16 mörk í 23 byrjunarliðsleikjum og 29 mörk í heildina. „Fyrstu sex mánuði var allt fullkomið en svo breytti hann um leikkerfið og það gekk ekki upp fyrir mig. Ég fór og talaði við hann og sagði honum að ég vildi ræða málin,“ segir Zlatan í viðtali við Sky Italia. „Ég sagði honum að mér fannst að hann væri að fórna sumum leikmönnum fyrir einn leikmann. Það var Messi. Hann sagðist ekki vera sammála því en skildi hvert ég var að fara. Guardiola sagðist ætla að laga allt og leysa öll vandamál og allt yrði í lagi.“ „Í næsta leik var ég svo aftur á bekknum. Ég sagði ekkert heldur lagði bara meira á mig. Svo var ég á bekknum aftur í næsta leik. Hann talaði ekki við mig og svo var ég á bekknum þriðja leikinn í röð og svo fjórða leikinn.“ „Mér fannst þetta skrítið en þarna hætti hann alveg að tala við mig. Ef ég kom inn í herbergi fór hann út og horfði ekki á mig. Hann var ekki slæmur maður, bara sá barnalegasti sem ég hef kynnst. Alvöru maður leysir svona vandamál,“ segir Zlatan Ibrahimovic.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mourinho trúir ekki því sem Pep segir Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, byrjaði sálfræðihernaðinn fyrir leikinn gegn Man. City um næstu helgi um leið og hann var kominn með sitt lið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær. 6. desember 2017 14:00 Mest lesið Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Golf Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Fótbolti Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Fótbolti Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Enski boltinn Meiddist alvarlega hjá sjúkraþjálfaranum Fótbolti Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Fótbolti Fleiri fréttir „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Liverpool búið að selja leikmenn fyrir meira en 33 milljarða í sumar Pep Guardiola hjálpar Ten Hag Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Völdu Mo Salah bestan en Chris Wood frekar en Haaland í lið ársins Sóla ekki skemmt yfir Owen-treyju: „Vil ekki sjá hana“ Eze fari til Spurs fyrir vikulok Sjáðu mark Chiesa frá öllum vinklum og öll hin mörkin Isak skrópar á verðlaunahátíð Úlfarnir kaupa hraðasta leikmann Ítalíu Sjá meira
Mourinho trúir ekki því sem Pep segir Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, byrjaði sálfræðihernaðinn fyrir leikinn gegn Man. City um næstu helgi um leið og hann var kominn með sitt lið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær. 6. desember 2017 14:00