Hrókeringar í ríkisstjórn Noregs Atli Ísleifsson skrifar 19. desember 2016 09:42 Anders Anundsen hefur gegnt embætti dómsmálaráðherra frá árinu 2013. Vísir/Getty
Norskir fjölmiðlar greina frá því að breytingar verði gerðar í ráðherraliði Noregs, en tilkynnt var í gær að tveimur ráðherrum úr röðum Framfaraflokksins verði skipt út. Norski dómsmálaráðherrann Anders Anundsen og olíu- og orkumálaráðherrann Tord Lien munu yfirgefa ríkisstjórnina, en í þeirra stað koma þeir Per-Willy Amundsen og Terje Søviknes. Þeir Anundsen og Lien hafa átt sæti í ríkisstjórn Ernu Solberg, allt frá því að hún tók við völdum í október 2013. Í frétt NRK segir að hrókeringarnar komi sumpart ekki á óvart þar sem Anundsen hafi greint frá því í sumar að hann hugðist láta af ráðherradómi. Þá hefur hann lýst því yfir að hann sækist ekki eftir endurkjöri til norska þingsins. Hann hefur sætt nokkurri gagnrýni vegna orða um að hann vilji senda hælisleitendur á barnsaldri úr landi. Amundsen er þingmaður Troms og var lengi talsmaður Framfaraflokksins í málefnum innflytjenda. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 2005 og hefur meðal annars sagst vera efasemdamaður í umræðunni um loftslagsmál. Búist er við að greint verði formlega frá ráðherrabreytingunum á morgun. Hægriflokkur Solberg og Framfaraflokkurinn mynda saman minnihlutastjórn í Noregi, en stjórnin nýtur stuðnings Frjálslynda flokksins og Kristilega þjóðarflokksins.
Tengdar fréttir Minni tekjur af olíu í Noregi Frá því að verð á olíu hrundi árið 2014 hafa yfir 40 þúsund manns misst vinnuna í Noregi samkvæmt úttekt Aftenbladet. 16. desember 2016 07:15 Minnihlutastjórnir við völd í Svíþjóð, Danmörku og Noregi Myndun minnihlutastjórnar hér á landi hefur æ oftar verið nefnd til sögunnar á síðustu dögum, nú þegar ekkert bolar á nýrri ríkisstjórn rúmum sex vikum eftir kosningar. 14. desember 2016 14:15 Mest lesið „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Sjá meira
Minni tekjur af olíu í Noregi Frá því að verð á olíu hrundi árið 2014 hafa yfir 40 þúsund manns misst vinnuna í Noregi samkvæmt úttekt Aftenbladet. 16. desember 2016 07:15
Minnihlutastjórnir við völd í Svíþjóð, Danmörku og Noregi Myndun minnihlutastjórnar hér á landi hefur æ oftar verið nefnd til sögunnar á síðustu dögum, nú þegar ekkert bolar á nýrri ríkisstjórn rúmum sex vikum eftir kosningar. 14. desember 2016 14:15