Þetta er líka fín leið til að koma „merchi“ út og það er alls konar aukapakkar sem fólk getur nælt sér í – allt frá nælum upp í snekkjuferðir.“
Bíddu, snekkjuferð?
„Já, þetta er tveggja tíma lúxusferð á snekkju. Einnig er hvítt og rautt í boði og að sjálfsögðu fylgir þjónn með. Ég var fyrst að pæla í að hafa þyrluferð, en ég hætti við það því að það er svo erfitt að rappa í þyrlu á ferð og það hefði líka verið svo hættulegt svo að ég ákvað að færa þetta úr háloftunum niður á sjóinn. Ef það eru nógu margir sem leggja í púkk fyrir þessum pakka er þetta ekkert svo dýrt – þetta er alveg „perfect“ fyrir steggjaveisluna.“

„Platan kemur vonandi út á CD í lok næstu viku, síðan eru útgáfutónleikarnir viku eftir það.“
Verður ekki eitthvað rosalegt í gangi þar?
„Ég er búinn að vera í ákveðinni maníu varðandi þessa útgáfutónleika og fá alls konar risahugmyndir. Ég er búinn að segja svo mörgum frá þessum hugmyndum að ég get eiginlega ekki bakkað út úr því núna. Ég er kominn á þann stað að við erum búnir að plana frekar sturlað „show“ – sviðið verður með öðru sniði en venjulega þó að ég sé nú ekki að finna upp hjólið með því – en þetta er stórt torfærudekk sem við erum að fara að rúlla þetta kvöldið.“
Hérna má svo finna link á söfnun Gauta þar sem allskyns gúmmelaði er í boði.