Fór á margra mánaða fyllerí, varð edrú og stofnaði Wings Birgir Örn Steinarsson skrifar 24. maí 2016 11:04 Margir sögðu að Linda McCartney kynni ekkert að spila á hljómborð þegar Wings byrjuðu. Paul segir þá hafa haft rétt fyrir sér. Vísir/Getty
Paul McCartney segist hafa orðið þunglyndur eftir að Bítlarnir hættu. Í viðtali við BBC segir hann að það hafa verið töluvert áfall fyrir sig aðallega vegna þeirra áhrifa sem það hafði á vináttu þeirra. Paul segist hafa sótt í áfengi og partýstand í fyrstu vegna þessa en svo vaknað upp frá slæmum draumi þegar hann áttaði sig á því að það var ekki lengur gaman í nokkra mánaðarlöngu partýinu. McCartney segir að það hafi verið þáverandi eiginkona sín Linda sem hafi hjálpað honum að ná áttum. Þar af leiðandi hafi hann ákveðið að stofna hljómsveitina Wings. „Af einhverri stórfurðulegri ástæðu langaði mig til þess að byrja allt upp á nýtt. Margir sögðu að ég ætti að stofna ofur-grúbbu með fullt af þekktum hljóðfæraleikurum en ég vildi það ekki. Ég vildi fara aftur á byrjunarreit og gera allt frá grunni eins og við gerðum í Bítlunum. Fólk sagði við mig að ég væri klikkaður. Fólk sagði að Linda kynni ekkert að spila á hljómborð og það var alveg rétt! En ég meina, þegar við byrjuðum í Bítlunum þá kunni John ekkert á gítar – hann spilaði banjó hljóma á hann.“Bakstur og börnSamband Bítlanna fyrstu árin eftir að hljómsveitin hætti var ekki gott. Ekki hjálpaði til að Paul McCartney sá sig tilneyddan til þess að lögsækja félaga sína eftir samskiptaörðugleika sem mynduðust á milli þeirra í gegnum umboðsmanninn Allen Klein. Það varð til þess að hann og John Lennon töluðu ekki saman svo árum skipti. McCartney greinir frá því í viðtalinu að þeir hafi náð aftur saman áður en Lennon var skotinn til bana árið 1980. „Ég hringdi í hann annað slagið. Þá spjölluðum við bara um bakstur og börn.“
Tónlist Tengdar fréttir McCartney vill lögin sín aftur Paul McCartney missti höfundaréttinn að verkum sínum árið 1967 eftir svik náins samstarfsfélaga. Nú er von á að hann geti fengið hluta réttinda sinna aftur. 21. mars 2016 20:28 Paul McCartney ekki nógu merkilegur til að komast í eftirpartýið hjá Tyga - Myndband Bítillinn Paul McCartney, Beck og Taylor Hawkins var meinaður aðgangur í eftirpartý sem tónlistarmaðurinn Tyga stóð fyrir eftir Grammy-verðlaunin í Los Angeles. 17. febrúar 2016 16:00 Mest lesið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Blautir búkar og pylsupartí Menning Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Tónlist Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Lífið Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum Lífið Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Lífið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lífið Fleiri fréttir Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira
McCartney vill lögin sín aftur Paul McCartney missti höfundaréttinn að verkum sínum árið 1967 eftir svik náins samstarfsfélaga. Nú er von á að hann geti fengið hluta réttinda sinna aftur. 21. mars 2016 20:28
Paul McCartney ekki nógu merkilegur til að komast í eftirpartýið hjá Tyga - Myndband Bítillinn Paul McCartney, Beck og Taylor Hawkins var meinaður aðgangur í eftirpartý sem tónlistarmaðurinn Tyga stóð fyrir eftir Grammy-verðlaunin í Los Angeles. 17. febrúar 2016 16:00
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp