Eigandi Leeds bannaði stjóranum að fara í viðtal eftir tapleik Tómas þór Þórðarson skrifar 1. mars 2016 08:30 Steve Evans segir vanalega það sem hann er að hugsa. vísir/getty
Steve Evans, knattspyrnustjóri Leeds, fékk ekki að ræða við fjölmiðla eftir skammarlegt 4-0 tap liðsins gegn Brighton í ensku B-deildinni í fótbolta í gærkvöldi. Massimo Cellino, hinn skrautlegi ítalski eigandi og stjórnarformaður liðsins, bannaði Evans að fara í viðtöl, en sjálfur yfirgaf Cellino völlinn í hálfleik. Leeds var 4-0 undir í hálfleik, en Brighton skoraði fyrsta markið á 18. mínútu og lét svo rigna inn mörkum næstu 20 mínúturnar. Evans, sem stýrði áður Kára Árnasyni hjá Rotherham í þrjú ár, er mikill vélbyssukjaftur og því var mögulega skynsamlegt hjá Ítalanum að halda honum frá fjölmiðlum eftir leikinn. Paul Raynor, aðstoðarmaður Evans, var sendur í viðtölin eftir leik og þurfti að svara fyrir frammistöðu liðsins sem hefur nú aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum. „Við vitum að þið spyrjið spurninga og við vitum að þið þurfið svör,“ sagði Raynor aðspurður hvers vegna Evans væri ekki mættur sjálfur í viðtöl. „Við ætlum að reyna að gefa leikmönnunum svör við því hversu ömurlegur okkur fannst fyrri hálfleikurinn vera. Hann var algjörlega til skammar og svo sannarlega ekki nógu góður fyrir Leeds United,“ sagði Paul Raynor. Leeds er eftir tapið í 17. sæti deildarinnar með 38 stig, níu stigum frá fallsvæðinu.
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira