Leicester gladdi syrgjandi níu ára dreng Henry Birgir Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2016 10:45 Charlie brosandi í búningsklefa Leicester. Hann fékk einkaskoðunarferð um völlinn hjá félaginu.
Þeir eru margir sem halda með Leicester City í baráttunni um enska meistaratitilinn en Öskubuskuævintýri liðsins í vetur hefur verið með ólíkindum. Það er stutt í mars og Leicester er enn á toppi deildarinnar. Aðdáun margra á félaginu minnkaði síðan ekki er greint var frá frábærum viðbrögðum félagsins til þess að hressa við níu ára gamlan dreng sem var nýbúinn að missa móður sína. Nánar tiltekið tveimur dögum áður en honum var boðið að heimsækja félagið. Drengurinn heitir Charlie Keyworth og frændi hans hafði samband við félagið og spurði hvort það gæti ekki gert eitthvað fyrir hann. Annar frændi Charlies hafði spilað með Leicester á sínum tíma. Hann skoraði meðal annars þrennu fyrir félagið á sex mínútum gegn Man. Utd árið 1963.Skelfilega erfið vika „Eina sem Charlie vildi gera var að kíkja í búðina og kaupa sér könnu og lyklakippu. Hann fékk miklu meira en það og náði að gleyma öllu öðru á meðan,“ sagði faðir drengsins þakklátur. Leicester fékk sagnfræðing félagsins til liðs við sig og lét hann sína Charlie ýmsa muni sem tengdust frænda hans. Hann fékk að skoða allan völlinn og gera annað skemmtilegt. „Með nánast engum fyrirvara rúllaði Leicester út rauða dreglinum fyrir drenginn. Takk fyrir, Leicester. Takk fyrir,“ sagði frændinn sem stóð fyrir heimsókninni. „Þetta var skelfilega erfið vika fyrir Charlie en hún endaði á einhverju jákvæðu og skildi eftir sig góðar minningar á erfiðum tímum.“Faðir drengsins þakkaði Leicester fyrir í hjartnæmum pistli sem hefur verið í mikilli dreifingu á netinu.Leicester City. Proper football club. As I've mentioned in the past, my uncle played for Leicester in the 60s and was...Posted by Rob Keyworth on Saturday, February 20, 2016
Enski boltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira