„Mourinho er fullkominn fyrir United“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. febrúar 2016 10:00 José Mourino er líklega næsti maður á Old Trafford. vísir/getty
Suður-Afríkumaðurinn Benni McCarthy, fyrrverandi leikmaður Porto, segir að José Mourinho sé fullkominn fyrir Manchester United, en Portúgalinn er sterklega orðaður við stjórastöðuna á Old Trafford. Enskir miðlar hafa greint frá því að Mourinho sé nú þegar kominn í samningaviðræður við United og þá á hann að hafa sagt vinum sínum að hann tekur við af Louis van Gaal í sumar. McCarthy, sem vann Meistaradeildina undir stjórn Mourinho með Porto 2004, segir lykilatriði í þessu að Portúgalinn hefur sannað sig í leikjum á móti Pep Guardiola sem tekur við Manchester City í sumar. „Mourinho er einn af þessum mönnum sem veit hvernig á að vinna Guardiola,“ segir McCarthy í viðtali við BBC. „Þegar hann var hjá Real Madrid vann hann Guardiola nokkrum sinnum og hann náði einnig árangri gegn honum þegar Mourinho stýrði Inter.“ „Eins og staðan er núna sé ég engan sem á roð í Guardiola þegar hann er búinn að skipuleggja City-liðið. En Mourinho fengi peningana og leikmennina hjá United til að sigra Guardiola,“ segir McCarthy. Framherjinn er algjörlega ósammála því að Mourino sé skemmd vara eftir það sem gerðist hjá Chelsea í byrjun leiktíðar sem varð til þess að Portúgalinn var rekinn. „Stuðningsmennirnir og fjölmiðlamennirnir vita ekki hvað gengur á bakvið tjöldin. Ég er sannfærður um að það sem gerðist hjá Chelsea geri hann ekki að slæmum knattspyrnustjóra,“ segir McCarthy. „Manchester United er líka með mikið af ungum leikmönnum sem vilja ná langt. Mourinho gæti komið inn og verið fullkominn maður í starfið,“ segir Benni McCarthy.
Enski boltinn Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Ísland á heimavelli og leikur meistara meistaranna Sport „Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Sport Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira