Telja afnám hagsmunaaðildar að Samtökunum ´78 vinna gegn samstöðu innan hinsegin samfélagsins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. september 2016 09:05 Í yfirlýsingu Trans Ísland, Intersex og Q félags hinsegin stúdenta segir að öll þessi félög hafi átt gott samstarf við Samtökin ´78 "sem hafa staðið þétt við bakið á félögunum í baráttunni fyrir auknum rétti trans og intersex fólks, bæði þegar kemur lagalegum réttindum og félagslegum.“ mynd/trans ísland
Félögin Trans Ísland, Intersex Ísland og Q félag hinsegin stúdenta hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir vonbrigðum og áhyggjum af því að nokkrir frambjóðendur til stjórnar Samtakanna ´78 vilja afnema hagsmunaaðild innan samtakanna og einblína frekar á einstaklinga heldur en félög. Er það mat félaganna sem standa að yfirlýsingunni að slíkt sé ekki vænlegt til árangurs og muni stuðla enn frekar að sundrung innan hinsegin samfélagsins. Aðalfundur Samtakanna ´78 fer fram þann 11. september næstkomandi. Í Fréttablaðinu í liðinni viku kom fram að klofningur innan samtakanna sé óhjákvæmilegur en málið má rekja til þess þegar BDSM á Íslandi sótti um hagsmunaaðild að samtökunum. Í yfirlýsingu Trans Ísland, Intersex og Q félags hinsegin stúdenta segir að öll þessi félög hafi átt gott samstarf við Samtökin ´78 „sem hafa staðið þétt við bakið á félögunum í baráttunni fyrir auknum rétti trans og intersex fólks, bæði þegar kemur lagalegum réttindum og félagslegum,“ eins og segir orðrétt í yfirlýsingunni. „Öll félögin eiga fulltrúa í nefnd Velferðaráðherra um málefni hinsegin fólks og öll félögin eiga fulltrúa í nefnd er vinnur að lagafrumvarpi er snýr að bættri réttarstöðu fyrir trans fólk og intersex fólk. Stjórnum Trans Íslands, Intersex Íslands og Q félagsins finnst það því skjóta skökku við að vilja afnema hagsmunaaðild, en hagsmunaaðild hefur einmitt gert félögunum kleift að vinna með Samtökunum ‘78 í gegnum trúnaðarráð, samstarfsfundi og sameiginlega nýtingu á húsnæði. Forsenda þess samstarfs sem hefur átt sér stað hefur því að miklu leyti verið vegna hagsmunaaðildar félaganna og lýsum við því yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum að frambjóðendur vilji afnema hagsmunaaðild með öllu. Við teljum slíkt ekki vera vænlegt til árangurs og muni stuðla enn frekar að sundrung innan hinsegin samfélagsins, þar sem hópar munu færast enn frekar í sundur en saman. Aldrei áður hefur samstaða milli hinsegin samfélagsins verið jafn mikilvæg og teljum við afnám hagsmunaaðildar gagngert vinna gegn því markmiði. Klofningur hefur þegar átt sér stað innan Samtakanna ‘78 og munu slíkar aðgerðir ekki leiða til sátta né samstöðu. Sér í lagi á þetta við þar sem ekkert samráð hefur verið haft við aðildarfélög til margra ára áður en þessi stefna var mótuð,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Félögin vonast til þess að frambjóðendurnir íhugi afstöðu sína til hagsmunaaðildarinnar. Þá kalla þau jafnframt eftir virku samtali og samráði við sig en yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan:Nú líður að aðalfundi Samtakanna ‘78 sem hefur verið boðaður 11. september næstkomandi eftir mikil átök meðal félagsfólks. Stjórnir Trans Íslands, Intersex Íslands og Q félags hinsegin stúdenta hafa ákveðið að gefa út sameiginlega yfirlýsingu varðandi stöðu mála og stefnu sumra frambjóðenda til stjórnar Samtakanna ‘78.Eins og áður hefur komið fram í yfirlýsingu frá Trans Íslandi þá hefur margt trans fólk upplifað umræðuna undanfarna mánuði útilokandi fyrir trans fólk og aðra hópa innan hinsegin samfélagsins. Einblínt hefur verið á homma og lesbíur í málflutningi margra og virtist oft vera sem að ákveðnir aðilar líti aðallega á Samtökin ‘78 sem félag homma og lesbía. Slíkur málflutningur er bæði særandi og útilokandi og bað Trans Ísland því fólk að huga að sínum málflutningi er þetta mál varðar. Formaður Intersex Íslands benti einnig á að orðræða á þann veg að nú væri verið opna aðgang fyrir gagnkynhneigða inn í samtökin tæki ekki tillit til þess að sumt trans og intersex fólk er gagnkynhneigt og nú þegar félagar í Samtökunum 78.Nú hafa verið birtar framboðslýsingar til stjórnar Samtakanna ‘78 og eru þar frambjóðendur sem lýsa yfir að þau hyggist afnema hagsmunaaðild innan Samtakanna ‘78 til þess að einblína á einstaklinga frekar en félög og vonast eftir samstarfi við önnur félög þrátt fyrir að vilja fjarlægja þau með lagalegum hætti úr starfi Samtakanna ‘78.Stjórnir Trans Íslands, Intersex Íslands og Q félagsins lýsa yfir gríðarlegum áhyggjum og vonbrigðum með slíkar yfirlýsingar þar sem hvorki var haft samráð né samband við hagsmunafélögin sem um ræðir um slík áform með neinum hætti. Félögin hafa átt afar gott samstarf við Samtökin ‘78 sem hafa staðið þétt við bakið á félögunum í baráttunni fyrir auknum rétti trans og intersex fólks, bæði þegar kemur að lagalegum réttindum og félagslegum. Trans Ísland og Samtökin 78 hafa unnið saman að gerð fræðsluefnis á vegum félaganna og Samtökin ‘78 halda úti stuðningshóp fyrir trans ungmenni. Intersex Ísland og Samtökin ‘78 hafa hannað fyrsta fræðslu efnið á íslensku um intersex málefni og hefur þetta góða samband við félagið flýtt verulega fyrir að upplýsingar um intersex málefni kæmust inn í fræðslu efni Samtakanna. Q félagið hefur veitt mikilvæga tengingu við fólk á háskólaaldri með því að búa til rými fyrir hinsegin fólk sem er vaxið upp úr ungliðahreyfingunni og á mögulega erfitt með að fóta sig á öðrum vettvöngum samtakanna.Öll félögin eiga fulltrúa í nefnd Velferðaráðherra um málefni hinsegin fólks og öll félögin eiga fulltrúa í nefnd er vinnur að lagafrumvarpi er snýr að bættri réttarstöðu fyrir trans fólk og intersex fólk. Stjórnum Trans Íslands, Intersex Íslands og Q félagsins finnst það því skjóta skökku við að vilja afnema hagsmunaaðild, en hagsmunaaðild hefur einmitt gert félögunum kleift að vinna með Samtökunum ‘78 í gegnum trúnaðarráð, samstarfsfundi og sameiginlega nýtingu á húsnæði. Forsenda þess samstarfs sem hefur átt sér stað hefur því að miklu leyti verið vegna hagsmunaaðildar félaganna og lýsum við því yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum að frambjóðendur vilji afnema hagsmunaaðild með öllu.Við teljum slíkt ekki vera vænlegt til árangurs og muni stuðla enn frekar að sundrung innan hinsegin samfélagsins, þar sem hópar munu færast enn frekar í sundur en saman. Aldrei áður hefur samstaða milli hinsegin samfélagsins verið jafn mikilvæg og teljum við afnám hagsmunaaðildar gagngert vinna gegn því markmiði. Klofningur hefur þegar átt sér stað innan Samtakanna ‘78 og munu slíkar aðgerðir ekki leiða til sátta né samstöðu. Sér í lagi á þetta við þar sem ekkert samráð hefur verið haft við aðildarfélög til margra ára áður en þessi stefna var mótuð.Sömuleiðis lýsum við yfir miklum vonbrigðum og áhyggjum yfir því að manneskja í framboði til formanns félagsins, Kristín Sævarsdóttir, deili opinberlega grein Veturliða Guðnasonar sem að gerir lítið úr pankynhneigðu fólki og þeirra kynhneigð auk þess að gera lítið úr tilvist trans fólks og intersex fólks með yfirlýsingum um að eingöngu séu til tvö kyn. Slíkt er einfaldlega ekki við hæfi ef viðkomandi segist ætla að beita sér fyrir réttindum og tilvist hinsegin fólks og gengur þvert gegn markmiðum og baráttumálum Samtakanna ‘78, Trans Íslands, Intersex Íslands og Q félagsins. Við vonum því að frambjóðendur endurhugsi stefnu sína, enda er hún ekki eitthvað sem að stjórnir Trans Íslands, Intersex Íslands eða Q félagsins geta verið sáttar við. Þá köllum við einnig eftir virku samtali og samráði við Trans Ísland, Intersex Ísland og Q félagið um stefnumótun Samtakanna ‘78 sem eru jú einnig hagsmunafélag okkar, trans og intersex fólks og ungs hinsegin fólks.Virðingarfyllst,F. hönd Trans Íslands,Alexander Björn Gunnarsson, formaðurUgla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, varaformaður og fjölmiðlafulltrúiSteina Dögg Vigfúsdóttir, gjaldkeriAlda Villiljós, ritariSandra Rós Hrefnu Jónsdóttir, meðstjórnandiSvanhvít Ada Sif Björnsdóttir, fulltrúi í trúnaðarráðiF. hönd Intersex ÍslandsKitty Anderson, formaðurBríet Finnsdóttir, varaformaðurKristín María Björnsdóttir, ritariHrefna Björnsdóttir, meðstjórnandiF. hönd Q félags hinsegin stúdentaSigurður Ýmir Sigurjónsson, formaðurKristín Lovísa Lárusdóttir, varaformaðurAnna R. Jörundardóttir, gjaldkeriHeiðrún Fivelstad, ritariHelga Haraldsdóttir, meðstjórnandiEmbla Orradóttir Dofradóttir, meðstjórnandiBergþóra Sveinsdóttir, meðstjórnandi
Tengdar fréttir Finnst Samtökin ´78 hafa gleymt þeim Allt stefnir í klofning innan Samtakanna '78. Virðist sem hópur samkynhneigðra í samtökunum upplifi að hann hafi gleymst í baráttunni. 31. ágúst 2016 06:00 „Þurfum að rækta kynvillinginn í okkur“ Eva María Þórarinsdóttir Lange er formaður Hinsegin daga. Hún segir trans- og intersex-fólk eiga á brattann að sækja. Þá sé mikilvægt að líta út fyrir landsteinana, þar sem mannréttindi eru ekki jafn sjálfsögð og hér á landi. 5. ágúst 2016 07:00 Vinna að sátt eftir átök Innganga BDSM á Íslandi í Samtökin '78 hefur leitt af sér margra mánaða erjur innan samtakanna. Fundir samtakanna hafa í tvígang samþykkt aðildina. 15. júní 2016 07:00 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira
Finnst Samtökin ´78 hafa gleymt þeim Allt stefnir í klofning innan Samtakanna '78. Virðist sem hópur samkynhneigðra í samtökunum upplifi að hann hafi gleymst í baráttunni. 31. ágúst 2016 06:00
„Þurfum að rækta kynvillinginn í okkur“ Eva María Þórarinsdóttir Lange er formaður Hinsegin daga. Hún segir trans- og intersex-fólk eiga á brattann að sækja. Þá sé mikilvægt að líta út fyrir landsteinana, þar sem mannréttindi eru ekki jafn sjálfsögð og hér á landi. 5. ágúst 2016 07:00
Vinna að sátt eftir átök Innganga BDSM á Íslandi í Samtökin '78 hefur leitt af sér margra mánaða erjur innan samtakanna. Fundir samtakanna hafa í tvígang samþykkt aðildina. 15. júní 2016 07:00