Innlent

Engin mygla hefur fundist á listasafninu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
Ekki hefur orðið vart við myglusvepp í húsnæði Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu en velferðarráðuneytið hyggst flytja úr sínum hluta hússins innan skamms vegna hans. Það var tilkynnt á starfsmannafundi ráðuneytisins í gær.

„Við höfum ekki orðið vör við myglusvepp. Það er auðvitað spurning hvort við gerum einhverja skoðun á því í ljósi þessara upplýsinga. Ég held við munum hafa opin augun,“ segir Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.

Ákvörðun velferðarráðuneytisins um flutningana er byggð á sameiginlegri niðurstöðu eiganda Hafnarhússins, Faxaflóahafna, og ráðuneytisins þar sem ástand húsnæðisins þykir ófullnægjandi. Á síðustu árum hefur tvívegis verið reynt að uppræta vandann en það hefur ekki tekist.

Endurbætur sem ráðast þarf í á Hafnarhúsinu kosta mörg hundruð milljónir króna, að því er haft var eftir Gísla Gíslasyni hafnarstjóra Faxaflóahafna í fréttum Stöðvar 2 í gær.


Tengdar fréttir

Endurbætur á Hafnarhúsinu kosta mörg hundruð milljónir

Velferðarráðuneytið verður flutt úr Hafnarhúsinu við Tryggvagötu á næstu vikum út af raka og myglusvepp sem hefur haft áhrif á marga starfsmenn. Illa hefur gengið að uppræta vandann og munu endurbætur á húnæðinu kosta mörg hundruð milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×