Simmons sagt upp hjá Njarðvík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. desember 2015 14:03 Simmons í grænju treyjunni. Vísir/Anton
Bandaríkjamaðurinn Marquis Simmons hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Njarðvík en samningi hans hefur verið sagt upp. Þetta kom fram á karfan.is. „Hann var einfaldlega ekki að standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar,“ sagði Gunnar Örn Örlygsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, í samtali við karfan.is. Simmons hefur verið með 18,7 stig og 11,4 fráköst að meðaltali í leik í vetur en Njarðvíkurliðið hefur ekki náð sér á flug í vetur og er sem stendur í sjötta sæti Domino's-deildar karla með tíu stig eftir níu leiki. „Við töldum réttast að gera þetta svona frekar en að láta hann klára til jóla. Það sýnir fagmennsku af okkar hálfu og einnig tel ég með fullri virðingu fyrir honum að aðrir leikmenn eigi að geta fyllt það skarð sem hann skilur eftir sig,“ sagði Gunnar. Njarðvíkingar reyndu að fá íslenskan bakvörð til liðsins í haust en það gekk ekki. Opnað verður fyrir félagaskipti í janúar og segir Gunnar að Njarðvík muni þá reyna að finna bakvörð á íslenska leikmannamarkaðnum á nýjan leik. Gunnar segir að ef Njarðvík finnur íslenskan bakvörð muni liðið fá sér stóran bandarískan leikmann á nýjan leik en að öðrum kosti gæti farið svo að liðið myndi leita sér að bandarískum bakverði.
Dominos-deild karla Mest lesið Harmleikur á Bretlandi: „Hann var frábær faðir“ Sport Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Golf Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Handbolti Arsenal tapaði í París og titlalaust tímabil staðreynd Fótbolti Leik lokið: Haukar - Njarðvík 93-95| Njarðvíkingar eru enn á lífi Körfubolti Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Körfubolti Bjuggust alls ekki við þessu af Bergrós: „Hún var alveg ótrúleg“ Sport Hetja Breiðabliks lá á gjörgæslu í eina viku: „Þakklátur fyrir heilsuna“ Íslenski boltinn Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Handbolti Sjáðu mörkin og Hödda Magg missa sig yfir besta einvígi ársins Fótbolti Fleiri fréttir Arteta skaut á Liverpool á fundi fyrir PSG leikinn Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar Brasilíudvöl í kortunum hjá Jorginho Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Aftur tapar Forest stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ María fagnaði sigri á Arsenal á sama degi og tilkynnt var um brottför hennar Amorim: Liðið ekki nógu gott til að vera í Meistaradeildinni Staðfestir brottför frá Liverpool Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Klúður hjá Everton gegn Ipswich og langþráður sigur Leicester Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Sjá meira