Tónlist

Goðsagnir áfram á Innipúkanum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Megas kom fram með hljómsveitinni Grísalappalísu í fyrra og vakti samspilið mikla lukku
Megas kom fram með hljómsveitinni Grísalappalísu í fyrra og vakti samspilið mikla lukku mynd/þorsteinn surmeli
„Við erum búin að bóka nokkur bönd en það eina sem ég get sagt núna er að þetta stefnir í geggjaða hátíð,” segir Ásgeir Guðmundsson, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Innipúkinn 2015. Þetta er í fjórtánda sinn sem hátíðin fer fram en hún er haldin um verslunarmannahelgina í miðbæ Reykjavíkur.

Undirbúningur er hafinn á fullu og fer hátíðin fram samtímis á Húrra og Gauknum. „Við munum loka götunni til að mynda alvöru götuhátíðarstemningu yfir daginn,” segir Ásgeir.

Það er venja hátíðarinnar að það komi alltaf að minnsta kosti ein lifandi goðsögn fram á hátíðinni og verður engin breyting á því í ár. „Viðræður eru hafnar við nokkur legend en ég get ekki gefið upp hvaða legend þetta eru að svo stöddu,” bætir Ásgeir við og glottir.

Á síðasta ári kom fram goðsögnin Megas og lék hann með hljómsveitinni Grísalappalísu. „Svo hafa komið fram áður goðsagnir eins og Þú og ég sem komu fram með Moses Hightower og svo stigu Raggi Bjarna og Retro Stefson saman á svið, svo nokkur nöfn séu nefnd. Þetta er alltaf ótrúlega skemmtilegt.”

Fyrstu sveitir verða tilkynntar á næstu dögum og mun miðasala hefjast í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×