„Platan er alveg tilbúin,“ segir Skúli Gestsson, bassaleikari sveitarinnar, og bætir við: „En við liggjum á henni eins og ormar á gulli.“ Hann segir að ástæða þess að sveitin bíði með útgáfu plötunnar sé að hún komi út samtímis hér á landi og erlendis. „Það er ekki eins hlaupið að því að gefa plötuna út erlendis og við ákváðum því að bíða aðeins með hana.“
Skúli segir að sveitin hafi farið nýjar leiðir á þessari óútkomnu plötu, sem enn á eftir að finna titil á. „Við unnum plötuna með þýska upptökustjóranum Sky Van Hoff. „Við höfum sjálfir séð um upptökustjórn á tveimur síðustu plötunum okkar og gert allt þess háttar á eigin spýtur. Þetta voru því skemmtileg viðbrigði,“ útskýrir hann og bætir við að sveitin hafi farið tvisvar til Þýskalands og dvalið hjá Van Hoff. „Það er fátt sem knýr mann áfram eins og reiður maður sem talar þýsku. Hann tók okkur alveg í gegn, við erum vanir að stjórna okkur sjálfir.”
Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið Sink or Swim.