Árlegur mánuður mottunnar hafinn Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 2. mars 2015 11:45 Kristján Björn tekur nú þátt í Mottumars í fimmta sinn og safnaði áheitum í Kolaportinu í gær. Vísir/AndriMarinó
Mottumars er nú haldinn í áttunda sinn en átakið er liður í baráttu gegn krabbameini hjá körlum. Sú upphæð sem safnast í Mottumars er notuð í forvarnir, fræðslu, rannsóknir og ráðgjöf. Það er talsverð vinna sem fer í viðhalda snyrtilegri mottu og saga hennar á Íslandi er forvitnileg. Kristján Björn Tryggvason tekur þátt í Mottumars og hefur sett sér það markmið að safna einni milljón króna. „Ég er búinn að lenda í öðru, þriðja og fjórða sæti,“ segir Kristján glaður í bragði og bætir við: „Ég held að þetta sé fimmta árið sem ég tek þátt.“ Hann skartar mottunni með stolti og stóð vaktina í Kolaportinu í gær þar sem hann safnaði áheitum sem numu þrjátíu og níu þúsund krónum.Helgi Svavar framleiðir skeggolíu og er hér í góðum félagsskap manna sem skarta mottu. Sjálfur er hann alskeggjaður.Mynd/HelgiSvavarHelgi Svavar Helgason tónlistarmaður framleiðir skeggolíu og ýmsan skeggvarning undir nafninu HSH skeggvörur. Sjálfur skartar Helgi myndarlegu alskeggi og hefur tekið þátt í Mottumars nokkrum sinnum. „Neyðin kennir nöktum skeggjuðum manni að spinna,“ segir hann glaður í bragði en hann réðst í gerð olíunnar eftir að hafa rekið sig á að slíka vöru var erfitt að finna hér á landi. Skeggolían hentar þeim herramönnum sem vilja gera sérstaklega vel við mottuna í mánuðinum. „Það er ekkert nauðsynlegt, en það er ofboðslega notalegt,“ segir hann og hlær þegar hann er spurður að því hvort skeggolían sé nauðsynlegur fylgihlutur fyrir þá sem skarta vilja þéttum og góðum hárvexti í andliti. „Þetta er bara eins og að fara með bílinn í smurningu, ef þú gerir það ekki þá eyðileggst hann,“ segir hann og hlær.Siggeir Fannar skrifaði lokaritgerð sína um íslenska skeggtísku.mynd/TinnaHalls Í Góðum félagsskapSiggeir Fannar Ævarsson sagnfræðingur er mikill skeggáhugamaður og fjallaði lokaritgerð hans um íslenska skeggtísku. Í ritgerðinni, sem nefnist „Upphaf íslenskrar skeggtísku. 100 ára þróun skeggtísku á Íslandi“, er sérkafli sem fjallar um yfirvaraskegg. Í kaflanum kemur fram að yfirvaraskegg hafi átt miklum vinsældum að fagna hér á landi um aldamótin 1900 og segir Siggeir að jafnvel megi ganga svo langt að segja að þau hafi verið á allra vörum. Á því hefur orðið breyting. „Mottan er mjög bundin við mars og svo hverfur hún alltaf aftur, fólk virðist vera feimið við að skarta mottunni ef það er ekki eitthvað sérstakt tilefni.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira