Tónlist

Íslandsvinaplötur ársins 2015

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
James Blake
James Blake vísir/getty
Fjölmargir tónlistarmenn hafa upplýst að nýs efnis sé að vænta frá þeim á árinu og er gróska í tónlistarheiminum mikil. Þeirra á meðal er fjöldinn allur sem spilað hefur hér á landi. Fréttablaðið tók saman lista yfir tíu spennandi plötur Íslandsvina sem koma út á árinu.

James Blake - Radio Silence 

Þriðja plata hins breska James Blake er væntanleg á árinu. Samnefnd fyrsta plata kappans kom út árið 2011 og var fylgt eftir með útkomu Overgrown árið 2013. Sama ár spilaði Blake á Sónarhátíðinni í Reykjavík en báðar plötur hans voru tilnefndar til Mercury verðlauna og sú síðari hlaut þau. Ekki er vitað hvenær árs platan er væntanleg en upplýst var á BBC Radio 1 að hún hefði hlotið nafnið Radio Silence.

Modest Mouse - Strangers to Ourselves 

Bandaríska sveitin Modest Mouse spilaði á tónleikum á Gauki á Stöng árið 2001. Þar sem sveitin þurfti að ná flugi heim um nóttina hitaði hún upp fyrir sjálfa sig og Maus fylgdi svo í kjölfarið. Platan kemur út í mars og verður sjötta hljóðversplata sveitarinnar.

Bob Dylanvísir/getty
Van Morrison - Ónefnd 

Norður-Írinn, sem verður sjötugur á árinu, hélt tónleika hérlendis í októbermánuði 2004 sem þóttu takast frábærlega. Flestir gagnrýnendur gáfu þeim fullt hús stjarna. Platan í ár verður sú 35. í röðinni en fengist hefur staðfest að hennar sé að vænta fyrrihluta ársins. 

Bob Dylan - Shadows in the Night

Tónlistarferill Bobs Dylan spannar tæplega sextíu ár og verður platan í ár sú 36. í röðinni. Á henni mun hann leika lög sem aðrir tónlistarmenn gerðu fræg, meðal annars lagið Full Moon and Empty Arms sem Frank Sinatra gerði frægt. Dylan hélt eftirminnilega tónleika í Laugardalshöll árið 1990 og aðra árið 2008. 

Sjá einnig: Bubbi reddaði Bob Dylan hassi

Duran Duran og Nile Rodgers í hljóðveri.mynd/duran duran
Beach House - Ónefnd

Dúettinn frá Maryland í Bandaríkjunum lék hér á landi á Iceland Airwaves-hátíðinni árið 2011. Ári síðar kom platan Bloom út sem var af mörgum talin besta plata ársins. Talsverð leynd hvílir yfir fimmtu plötu sveitarinnar en upptökur á plötunni hafa staðið yfir síðan síðla árs í fyrra. 

Duran Duran - Ónefnd

Fjórtánda breiðskífa Duran Duran kemur út á árinu. Platan hefur enn ekki hlotið nafn eða útgáfudagur verið gefinn upp. Simon Le Bon og félagar hafa að undanförnu unnið að plötunni ásamt Nile Rodgers og Mark Ronson. 11.000 manns sáu Duran Duran spila í Egilshöll í lok júní 2005.

Deafheaven leika á ATP í sumar.vísir/getty
Deafheaven - Ónefnd

Blackmetal-sveitin var stofnuð árið 2010 og hefur gefið út tvær skífur. Sú síðari, Sunbather, hlaut nær einróma lof spekúlanta. Ný plata frá sveitinni er væntanleg um miðbik ársins. Formlega telst sveitin ekki enn Íslandsvinur en drengirnir leika á All Tomorrow's Parties sem fram fer í sumar.

of Montreal - Aureate Gloom

of Montreal fagnar tuttugu ára starfsafmæli á næsta ári og þegar Aureate Gloom kemur út í mars verða plöturnar orðnar þrettán. Mannabreytingar í sveitinni eru tíðar og hleypur fjöldi meðlima í gegnum tíðina á tugum. Árið 2007 lék sveitin á Iceland Airwaves.

Purity Ringvísir/getty
Purity Ring - Another Eternity

Kanadíski rafdúettinn lék í Listasafninu á Iceland Airwaves árið 2012 skömmu eftir að frumburður sveitarinnar, Shrines, leit dagsins ljós. Another Eternity kemur út í byrjun mars og hafa tvö lög hennar, Begin Again og Push Pull, þegar komið út.

The Prodigy - The Day Is My Enemy

The Prodigy er ein af þeim erlendu sveitum sem komið hafa hvað oftast til Íslands. Sveitin spilaði í Kaplakrika 1994, á útihátíðinni Uxa 1995 og í Laugardalshöll áður en öldin rann sitt skeið. Sjötta skífa sveitarinnar er á leiðinni en sex ár eru síðan Invaders Must Die kom út. Fyrsta lag plötunnar er komið út en það heitir Nasty.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×