Sex leikmenn frá Chelsea í liði ársins á Englandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2015 11:40 Serbarnir Branislav Ivanovic og Nemanja Matic eru báðir í liði ársins. vísir/getty
Chelsea á sex leikmenn í liði ársins í ensku úrvalsdeildinni. Það eru leikmannasamtökin sem velja liðið. Í kvöld verður svo tilkynnt hverjir hljóta nafnbótina besti leikmaður tímabilsins og besti ungi leikmaður tímabilsins. Þrír af fjórum varnarmönnum í liði ársins koma frá Chelsea; Branislav Ivanovic, Gary Cahill og John Terry. Ryan Bertrand, leikmaður Southampton og fyrrverandi leikmaður Chelsea, er einnig í fjögurra manna varnarlínunni. David De Gea, markvörður Manchester United, stendur í rammanum. Alexis Sánchez (Arsenal), Philippe Coutinho (Liverpool) og Chelsea-mennirnir Nemanja Matic og Eden Hazard eru á miðjunni í liði ársins en athygli vekur að ekkert pláss er fyrir Cesc Fábregas, leikmann Chelsea sem hefur lagt upp flest mörk allra í úrvalsdeildinni í vetur. Diego Costa (Chelsea) og Harry Kane (Tottenham) skipa svo framherjastöðurnar en þeir hafa verið iðnir við kolann í vetur. Sergio Agüero, markhæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar, kemst ekki í liðið sem má sjá í heild sinni hér að neðan.What do you think to this then? We'll be discussing it on #MOTD2 Extra, 12:15 BST on @BBCTwo http://t.co/YogDcXE63Z pic.twitter.com/OtEBHrNxy1— Match of the Day (@BBCMOTD) April 26, 2015
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira