Innlent

Rafmagnsleysi í miðbæ Reykjavíkur

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Rafmagnið fór af klukkan 11.45 í dag.
Rafmagnið fór af klukkan 11.45 í dag. Vísir/Stefán
Rafmagnslaust er í stórum hluta miðbæjar Reykjavíkur þessa stundina. Rafmagnið fór af um rétt fyrir klukkan tólf vegna bilunar í háspennukerfi. Vinnuflokkar eru á leið að kerfinu til að tengja eftir varaleiðum, að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að rafmagnið verði komið á að nýju innan stundar.

„Við sjáum ekki enn hvað það var sem olli biluninni en eins og staðan er núna leggjum við áherslu á að koma varasambandinu á sem allra allra fyrst og þurfum svo að grafast fyrir um hvar bilunin liggur,“ segir Eiríkur í samtali við Vísi. Þá segir hann það ekki liggja fyrir að svo stöddu hversu stór hluti íbúa miðbæjarins glímri við rafmagnsleysi.

Uppfært klukkan 12.50:

Rafmagn er komið á alls staðar nema á mjög afmörkuðu svæði við Ægisgarð. Útlit er fyrir að grafið hafi verið í háspennustreng, í annað sinn á einum sólarhring. Unnið er að viðgerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×