Þingmenn taka kófsveittir á aukakílóum Jakob Bjarnar skrifar 2. janúar 2015 13:03 Kannski ekki fyrstu nöfnin sem mönnum dettur í hug en furðanlega liprir miðað við útlit og atgervi. Þarna kom sér greinilega vel áralöng ballettiðkun Ása á yngri árum, segir Brynjar um sinn fyrsta dag í ræktinni.
Landsmenn eru nú sjálfsagt margir að velta því fyrir sér hvernig eigi að taka á þeim kílóum sem bættust á búkinn um hátíðarnar. Þingmenn eru þar engin undantekning. Brynjar Níelsson fór í sinn fyrsta líkamsræktartíma í morgun og þegar Vísir hafði samband við hann sagðist hann algerlega búinn. „Meira að segja miðað við Ása og Jón,“ segir Brynjar og vísar þar til þingmanna Sjálfstæðisflokksins, þeirra Ásmundar Friðrikssonar og Jóns Gunnarssonar. Það voru reyndar þeir sem drógu Brynjar af stað í ræktina. Hann segir þá löngu byrjaða.En, gamla knattspyrnuhetjan getur varla hafa látið sitt eftir liggja í samanburði við þessa menn sem seint geta talist íþróttamannslega vaxnir? „Nei, gamla knattspyrnuhetjan lætur verulega á sjá og stendur ekki vel að vígi. Ég er í augnabliku nær dauða en lífi.“ Brynjar segir engar myndir hafa verið teknar til að skrásetja þennan sögulega atburð á „filmu.“ „Nei engar myndir teknar, eiginlega bannað í bili. Vigtun er bönnuð einnig en mér finnst líklegast að ég sé léttastur en bilið er örugglega ekki mikið,“ segir Brynjar. Brynjar lýsir þessari reynslu fyrir vinum sínum á Facebook við mikinn fögnuð. Hann kallar einkaþjálfarana ofbeldismenn og hann hafi verið látinn drekka einhvern ógeðsdrykk „eftir allar misþyrmingarnar. Með mér í þessum ofbeldisleik eru Jón Gunnarsson og Ási Friðriks. Kannski ekki fyrstu nöfnin sem mönnum dettur í hug en furðanlega liprir miðað við útlit og atgervi. Þarna kom sér greinilega vel áralöng ballettiðkun Ása á yngri árum.“ Þingmenn eru reyndar í betri aðstöðu til að skokka á hlaupabrettum líkamsræktarstöðva en gerist og gengur meðal pöbulsins, en árið 2012 voru samþykkt umdeild lög á Alþingi sem kveða á um ýmis hlunnindi þingmanna, svo sem frí gleraugu, heyrnartæki og ókeypis líkamsrækt. Brynjar segir spurður um hvort þeir hafi ekki notfært sér þetta að það séu engin sérkjör eða spilling í þessu.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira