Innlent

Kynferðisbrotum fækkar mest

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman afbrotatölur fyrir árið 2014.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman afbrotatölur fyrir árið 2014. Fréttablaðið/Pjetur
Hegningarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um fjögur prósent á árinu 2014 samanborið við 2013. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um fjölda helstu brota árið 2014.

Kynferðisbrotum fækkaði hlutfallslega mest, eða um 40 prósent.

Þjófnuðum fækkaði um sex prósent en þar af fækkaði farsímaþjófnuðum mest eða um 25 prósent. Innbrotum fjölgaði um fjögur prósent á milli ára og þar af fjölgaði innbrotum í ökutæki hlutfallslega mest.

Ofbeldisbrotum fjölgaði um átta prósent og hefur þeim verið að fjölga undanfarin ár. Rúmlega helmingur þeirra átti sér stað að kvöld- eða næturlagi og um 40 prósent áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur.

Fíkniefnabrotum fjölgaði um fjórtán prósent á milli ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×