Innlent

Gekk nakinn á næsta bæ til að bjarga konu sinni og tengdamömmu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vífill og konurnar tvær voru í húsinu Bjargi í Eyjafjarðasveit þegar eldurinn kom upp.
Vífill og konurnar tvær voru í húsinu Bjargi í Eyjafjarðasveit þegar eldurinn kom upp. Vísir/Stefán
Vífill Valgeirsson þurfti að hlaupa nakinn á næsta bæ til að bjarga konu sinni og tengdamóður úr brennandi húsi aðfaranótt aðfangadags í Eyjafjarðasveit. Allir komust stórslysalaust út úr húsinu með hjálp slökkviliðs en kona hans þurfti að eyða jólunum á spítala vegna reykeitrunar. Vísir fjallaði um málið á aðfangadag en RÚV greindi fyrsta frá aðstæðum í morgun.

Hér má sjá hvar Bjarg er staðsett á landinu.Vísir/Loftmyndir
„Það kviknaði þarna í út frá þurrkofn sem við vorum með. Við vorum farin að sofa en sem betur fer vaknaði ég og komst út. Ég hljóp á næsta bæ þar sem ég gat hringt á slökkviliðið,“ segir Vífill aðspurður um atburði næturinnar. Hann segir að slökkvilið hafi komið fljótt og bjargað konunum út. 

„Þegar ég kemst út í súrefnið skellist hurðin á eftir mér og hún er læst. Ég náði svo að brjóta glugga í hurðinni til að opna,“ segir hann en þá tók eldurinn á móti honum. „Hitinn var svo mikill að ég komst hvorki upp né niður og það var eina leiðin að fara á næsta bæ.“

Vífill og konurnar tvær voru í húsinu Bjargi í Eyjafjarðasveit þegar eldurinn kom upp. Húsið er mjög illa farið eftir eldinn og er neðri hæð hússins ónýt, að sögn Vífils.

„Ég kallaði á hana og tók eitthvað í hana en í fátinu hef ég ekki gert nóg. Hún var sofandi,“ segir Vífill aðspurður um hina sem voru í húsinu. „Þetta endaði allt mjög vel. Við erum öll að koma til heilsu. Konan mín var þarna lengst inni og hún fékk einhvern snert af reykeitrun en hún er öll að ná sér og komin heim og allt í góðu lagi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×