Upplýsa ekki um bætur vegna díoxínmengunar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. janúar 2015 07:00 Sorpbrennslunni Funa var lokað eftir að í ljós kom að eiturefni bárust frá henni út í umhverfið og inn Engidal. Fréttablaðið/Pjetur „
Ég á ekkert hlut að þessu,“ segir Steingrímur Jónsson í Efri-Engidal um drög að samkomulagi um bætur vegna díoxínmengunar sem bæjarráð Ísafjarðar hefur samþykkt. Greint var frá díoxínmengun í mjólk frá Efri-Engidal um miðjan desember 2010. Mengunin reyndist einnig vera í kjöti frá Efri-Engidal og frá nokkrum frístundabændum á svæðinu. Í skýrslu Matvælastofnunar um málið kemur fram að díoxín sé meðal eitruðustu efna sem til eru og að efnið brotni mjög hægt niður í náttúrunni. Ljóst var að mengunin stafaði frá sorpbrennslunni Funa sem Ísafjarðarbær starfrækti í Engidal en var lokað í lok desember 2010. Brennslan var á undanþágu vegna díoxínmengunarinnar sem árið 2007 mældist tuttugufalt yfir viðmiðunarmörkum. „Þetta er búin að vera fjögurra ára þrautaganga,“ segir Steingrímur Jónsson, sem kveður málið enn ekki í höfn þótt bæjarráðið hafi samþykkt drög að samkomulagi sem hann kveður byggt á niðurstöðu matsmanna sveitarfélagsins. „Þeir eru bara búnir að samþykkja einhver drög og það vantar helling í þau,“ segir Steingrímur sem kveður enn ágreining um upphæðir og til hvaða tímabils bæturnar taki. „Þeir vilja bara taka tvö og hálft ár,“ segir Steingrímur sem sjálfur telur skaðann ná til lengra tímabils. Hann hafi misst atvinnuna þegar bústofn hans allur, áttatíu kindur og tuttugu nautgripir, var felldur bótalaust vorið 2011. „Ég varð bara að fara að leita mér að vinnu og hef verið vélstjóri til sjós.“ Sumarið eftir að mengunarinnar varð vart var gerð tilraun til að beita fé í Efri-Engidal. Steingrímur segir að hækkandi gildi díoxíns hafi mælst í skepnunum eftir tvo til þrjá mánuði. Fyrir utan að vatn hafi verið skoðað og reynst í lagi hafi eiturmagnið ekki verið rannsakað; hvorki í gróðri né í bleikju sem veiðist í landi hans. „Ég byrjaði aftur í fyrrahaust með nokkrar skepnur,“ segir Steingrímur sem kveður yfirvöld hafa gefið út að hefja mætti sauðfjárbúskap að nýju. Díoxín í þeim skepnum sem hann haldi nú hafi ekki verið mælt. Mengunin hljóti nú að vera yfirstaðin. Ísafjarðarbær neitar að afhenda fyrrnefnd drög að samkomulagi um bætur vegna díoxínmengunarinnar. Vísað er í þá grein laga um upplýsingamál sem kveður á um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Sjá meira