Um er að ræða fyrstu sameiginlegu EP-plötu Maríu og StopWaitGo. „Ég var alveg óþekkt fyrir Eurovision þannig að það er lítið til af tónlist með mér og þurftum við því að gefa þetta út svo fólk fái ekki algjört ógeð á mér,“ segir María létt í lundu og hlær.
Á plötunni eru tvö ný lög sem bera titlana, Dancing in the Storm og Wild as Summerlove. Ásamt þeim inniheldur platan einnig tvö ný remix af laginu Unbroken, sem og upprunalegu útgáfuna af Eurovision-framlaginu okkar. „Við erum mjög ánægð með nýju lögin og frumfluttum þau bæði í Kringlunni á laugardaginn. Þau eru bæði í stíl við Unbroken,“ útskýrir María.
Hún hefur í nógu að snúast þessa dagana þar sem að hún æfir nú af kappi fyrir Eurovision-keppnina sem fram fer 21. maí og 23. maí í Vín í Austurríki. „Við erum að fara út núna á miðvikudaginn og ég er orðin mjög spennt og hlakka mikið til að stíga á svið.“