Tónlist

Feðgarnir Stefán og Birgir með nýtt jólalag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stefán og Birgir.
Stefán og Birgir. Vísir/stefán
Feðgarnir Stefán Hilmarsson og Birgir Steinn Stefánsson voru að gefa frá sér jólalagið Um vetrarnótt.

Birgir hefur músíserað frá blautu barnsbeini og á undanförnum misserum gefið út nokkur lög með hljómsveit sinni September. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem þeir feðgar syngjum saman lag.

„Við munum frumflytja lagið opinberlega á jólatónleikunum mínum í Hörpu þann 11. og 16. desember, en þar syngja auk okkar Glowie, Guðrún Gunnarsdóttir og Stefanía Svavarsdóttir,“ segir Stefán Hilmarsson.

Jólaplata Stefáns Ein handa kom út árið 2008 og seldist í 7.000. Hún hefur ekki verið fáanleg lengi en stefnt er að endurútgáfu með nýja lagið sem aukalag á þeirri útgáfu.

Seinni jólaplatan hans Í desember kom út í fyrra og hefur selst í yfir 5.000 eintökum og er því einnig komin í gull. Hér að neðan má hlusta á þetta nýja lag með þeim feðgum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×