Jólasveinaskemmtun fyrir fullorðna veldur uppnámi Jakob Bjarnar skrifar 23. nóvember 2015 11:43 Andrea Ösp segir að jólasveinarnir hennar séu ekki erótískir dansarar, eins og jólabuffið sem hér má sjá, heldur fyrst og síðast fyndnir. „
Þetta var á laugardaginn. Það er mikið búið að hlæja að þessu. Nei, þetta náði ekki svo langt að fólki yrði verulega brugðið,“ segir Elísabet Thoroddsen hjá LS Retail í samtali við Vísi. Fyrirtækið var með hlaðborð og jólaskemmtun síðastliðinn laugardag. Og fyrir mistök hafði Elísabet pantað hina mjög svo slæmu jólasveina þá Rassaskelli og Píkusleiki. Samkvæmt frásögn Nútímans tókst á síðustu stundu að afstýra stórslysi en Andrea Ösp Karlsdóttir hjá Jólasveinaleigunni segir að það geti nú aldrei hafa staðið mjög tæpt; þarna hafi nú verið um einhvern misskilning að ræða.Litlar jólasveinahúfur fyrir geirvörtunum„Hún pantaði fullorðinsjólasvein og þeir eru mismunandi,“ segir Andrea Ösp í samtali við Vísi. Og hún heldur áfram: „Við bjóðum uppá burlesque-jólasveinadans, sem er ofboðslega fyndinn og hefur slegið í gegn. Þetta er ekki stripp í þeirri merkingu. Þeir afklæðast að einhverju leyti en einn jólasveinanna okkar er til dæmis með litlar jólasveinahúfur sem hann límir yfir geirvörturnar sínar og svona. Þetta er bara fyndið. Svo eru jólasveinarnir okkar með fullorðinsbrandara en þetta er alltaf algerlega samkvæmt óskum fyrirtækjanna,“ segir Andrea Ösp. Hún bendir á að til að fyrirbyggja misskilning þá hringi jólasveinninn alltaf á undan sér til að vita nákvæmlega hvað það er sem um er beðið. Svona til að hafa vaðið fyrir neðan sig, einmitt til að forðast slysin.Jólasveinarnir lesa salinnAndrea Ösp segir að það sé mikið að gera hjá Jólasveinaþjónustunni sem útvegar jólasveinaatriði á jólaglögg, jólahlaðborð, í heimahús þess vegna; jólaskemmtanir af hvers kyns toga. „Og svo sendum við stundum einn til tvo jólasveina sem fara með fullorðinsbrandara, mismunandi klúra eftir því hvað fólk vill.“ Og svo lesa jólasveinarnir náttúrlega salinn eins og góðum skemmtikröftum sæmir, ef fólk vill meira fjör, fær það meira fjör. Og það er greinilega mikið að gera hjá Jólasveinaþjónustunni, mikið um pantanir því meðan blaðamaður ræddi við Andreu hringdi síminn stanslaust og pöntunum rigndi inn. Það hefur augljóslega orðið þróun í þessum geira frá því Davíð Oddsson var atvinnujólasveinn og tróð upp ásamt Katli Larsen. Jólasveinaþjónustan, sem nú er á 9. starfsári, er með tæpa 20 jólasveina á sínum snærum sem flengjast um víðan völl, Grýlu og tónlistarmenn. Andrea segir mikinn metnað liggja í starfseminni og séu starfsmenn ýmist reyndir áhugaleikarar eða lærðir sem slíkir.
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sjá meira