Axel hefur spilað þrjátíu landsleiki í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2015 11:15 Hlynur Bæringsson, Axel Kárason og Ragnar Nathanaelsson. mynd/kkí
Axel Kárason er í íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum sem fram fara á Íslandi þessa dagana, en strákarnir okkar hefja leik gegn Andorra klukkan 19.30 í kvöld. Enginn annar leikmaður í íslenska liðinu á Smáþjóðaleikunum í ár hefur spilað jafnmarga leiki í röð án þess að missa úr landsleik. Axel Kárason hefur nú spilað þrjátíu landsleiki í röð eða alla leikið íslenska liðsins síðan að Peter Öqvist tók við íslenska liðinu sumarið 2012. Axel hafði þá ekki verið valinn í landsliðið í sex ár eða síðan að hann var með á Norðurlandamótinu í Tampere í Finnlandi í ágúst 2006. Þá valdi Sigurður Ingimundarson hann í landsliðið og Axel spilaði sinn fyrsta landsleik á móti heimamönnum í Finnlandi 2. ágúst 2006. Axel Kárason mun nú ekki bara spila fyrir Craig Pedersen með íslenska landsliðinu því Axel hefur gengið til liðs við Svendborg Rabbits, liðið sem Pedersen þjálfar í dönsku deildinni. Axel Kárason hefur reyndar aðeins spilaði 8 af 34 landsleikjum sínum fyrir íslenska þjálfara því fyrir utan þessa fjóra fyrstu undir stjórn Sigurðar Ingimundarson þá hefur hann spilað landsleiki sína fyrir erlenda þjálfara nema fjóra leiki á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg þar sem að Pétur Már Sigurðsson og Arnar Guðjónsson stýrðu íslenska liðinu í forföllum Peter Öqvist. Hlynur Bæringsson og Haukur Helgi Pálsson hafa aðeins misst af fjórum leikjum á þessum tíma en Haukur Helgi er ekki með á Smáþjóðaleikunum í ár vegna meiðsla.Flestir leikir fyrir íslenska karlalandsliðið frá 2012: Axel Kárason · 30 Hlynur Bæringsson · 26 Haukur Helgi Pálsson · 26 Logi Gunnarsson · 25 Pavel Ermolinskij · 24 Brynjar Þór Björnsson · 24 Ragnar Nathanaelsson · 19 Martin Hermannsson · 19 Jón Arnór Stefánsson · 19 Jakob Örn Sigurðarson · 19 Sigurður Gunnar Þorsteinsson · 17 Hörður Axel Vilhjálmsson · 15 Ægir Þór Steinarsson · 15Landsleikir Axels Kárasonar fyrir einstaka þjálfara: Peter Öqvist · 20 Craig Pedersen · 6 Sigurður Ingimundarson · 4 Pétur Már Sigurðsson · 4 Eins og fyrr segir er fyrsti leikurinn í kvöld en liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00). Frítt er inn á alla viðburði leikanna.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira