Mikið að gera á nýársnótt: Sturlaðist vegna ölvunar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 1. janúar 2015 09:36 Mikið var að gera hjá lögreglu í nótt enda mikið um skemmtanahöld víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Nýársnótt var venju samkvæmt erilsöm hjá lögreglu en flest atvik sem skráð voru tengdust eldsvoðum eða slysum vegna flugelda og umferðarlagabrotum. Einn gisti fangageymslu á Hverfisgötu eftir að hann var fjarlægður af heimili í austurhluta borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sturlaðist hann vegna ölvunar. Þriggja ára stúlka í Vesturbænum var flutt á slysadeild eftir að flugeldur úr skottertu fór í andlit hennar rétt fyrir miðnætti. Rúmlega fertugur karlmaður á skólalóð við Vallatröð fékk áverka í andlit eftir að flugeldaterta sprakk. Hann var fluttur á slysadeild. Lögregla var kölluð að leikskólanum við Hlaðbæ þar sem kveikt hafði verið í drasli við húsið, að Haukahrauni þar sem logaði eldur í blaðagámi og að íþróttamiðstöðinni við Dalhús þar sem einnig logaði í gámi. Einnig var kveikt í rusli við Ægisíðu en þar hafði verið brenna fyrr um kvöldið. Engar skemmdir urðu og tókst slökkviliði að slökkva eldinn Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fíkniefni fundust í bílnum og voru þau haldlögð. Þá var kona á fimmtugsaldri stöðvuð á Hafnarfjarðarvegi vegna ölvunar. Umferðarljós við Gullinbrú voru ekin niður en sá sem keyrði á ók af vettvangi. Á fimmta tímanum í nótt var lögregla kölluð til að Bröttugötu þar sem tilkynnt hafði verið um líkamsárás. Lögregla hefur lítið upplýst um atvikið en samkvæmt tilkynningu lá maður í götunni og þrír menn spörkuðu í hann.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira