Votlendi endurheimt innan borgarmarka Svavar Hávarðsson skrifar 2. janúar 2015 07:00 Úlfarsárdal Upp með Úlfarsá (Korpu) má víða í dalnum sjá gamla framræsluskurði og tún sem nýtt voru til beitar. fréttablaðið/gva
Lagt hefur verið til að ráðist verði í endurheimt votlendis í Úlfarsárdal, en einnig eru fleiri svæði innan borgarmarkanna til skoðunar hvað varðar endurheimt. Við fyrsta tækifæri á þessu ári verða möguleikar til endurheimtar lands í dalnum teknir út og aðgerðaáætlun mótuð í framhaldinu. Hugmyndin er frá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar komin. Hún var tekin til umræðu á fundi ráðsins fyrir jól. Í greinargerð segir að ráðist verði í endurheimt votlendis í dalnum ofanverðum með því að moka ofan í framræsluskurði en einnig er lagt til að unnið verði að kortlagningu á öðrum svæðum í eigu borgarinnar með það fyrir augum að þróa þetta verkefni áfram. Í greinargerðinni segir að þessi aðgerð hafi „fjölþætt gildi bæði sem náttúruverndaraðgerð og til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Á Íslandi hafa verið grafnir um 33.000 kílómetrar af skurðum og er verulegur hluti þessa lands ekki nýttur. Þetta inngrip hefur víðtæk áhrif og er þetta verkefni því aðkallandi umhverfismál“. Snorri Sigurðsson, verkefnastjóri á skrifstofu umhverfisgæða, segir að þrátt fyrir að hugmyndin sé ekki ný af nálinni, og á byrjunarreit, þá sé málið komið á dagskrá borgarinnar með skýrum hætti. Þar fyrir utan sé hægt að finna þessum fyrirætlunum stað í aðalskipulagi borgarinnar fyrir árin 2010 til 2030. „Um töluvert stórt svæði er að ræða, en nákvæmar tölur liggja fyrir eftir að úttekt hefur farið fram. Dalurinn er hins vegar stór og töluvert um tún og skurði – ekki síst næst Úlfarsá þar sem kannski eru ákjósanlegustu svæðin til þess að endurheimta land. Þar er beitarland sem hætt er að nota sem slíkt og tækifærin vissulega fyrir hendi,“ segir Snorri. Þessar áætlanir falla vel að stefnumörkun borgarinnar bæði hvað varðar loftslagsstefnu borgarinnar með tækifærum til kolefnisbindingar og ekki síður í takt við stefnumótun um líffræðilega fjölbreytni sem er í vinnslu. „Fyrst og síðast verður að undirbúa þetta vel. Svæði eru misheppileg til endurheimtar vegna landslags, dýralífs og gróðurfars,“ segir Snorri en önnur svæði sem hafa verið nefnd í þessu samhengi eru svæði á Kjalarnesi og Álfsnesi.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira