Kallar eftir dæmum um leka frá Sigmundi Davíð Jakob Bjarnar skrifar 2. janúar 2015 11:44 Steingrímur óskar þess að Sigmundur Davíð manni sig upp og nefni dæmi um leka um persónulega hagi fólks úr stjórnsýslunni -- önnur en þau sem snúa að Lekamálinu, með stóru L-i.
Steingrímur J. Sigfússon segir ummæli forsætisráðherra í Kryddsíld Stöðvar 2, þess efnis að sérkennilegt sé hversu stórt lekamálið varð því lekar um persónulega hagi fólks séu í raun mjög algengir í íslenskri stjórnsýslu, fráleit og kallar eftir dæmum. „Menn eru náttúrulega að velta upp ýmsum hliðum á þessu máli og þetta er orðið mjög stórt mál í umræðunni. En það er töluvert öðruvísi oft að skoða mál í fortíðinni þegar hægt er að líta yfir allt sviðið heldur en að meta þau jafnóðum,“ sagði Sigmundur Davíð áður en hann lét eftirfarandi orð falla: „Það er ekki óalgengt að það séu lekar úr ráðuneytum eða stofnunum, það er í raun og veru bara mjög algengt á Íslandi og oft lekar um mál sem varða persónulega hagi fólks. Það hefur aldrei áður orðið að máli eins og þessu. Þess vegna hefur ráðherrann ekki séð það fyrir hversu stórt mál þetta yrði,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Kryddsíld, áramótaþætti Stöðvar 2 um Lekamálið svokallað og hafa þau ummæli hans vakið mikla athygli. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna urðu forviða vegna ummæla og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar spurði Sigmund Davíð hvort þetta væri virkilega svo og svaraði Sigmundur að sérstakir lekamenn hefðu stundað leka fyrir fyrri ríkisstjórn.Ýmsir hafa furðað sig á þessum ummælum forsætisráðherra. Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra síðustu ríkisstjórnar og má ætla að Sigmundur Davíð hafi ekki síst verið að beina spjótum sínum að honum og þá Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrverandi forsætisráðherra. „Það er nú erfitt að henda reiður á svona löguðu fyrr en maðurinn færir einhver rök fyrir svona fullyrðingu, nefnir einhver dæmi og það er eitthvað handfast til að takast á við. Annars er þetta nú bara hinn almenni plagsiður Sigmundar Davíðs og margra í stjórnarliðinu núna að ef þau eru í vandræðum og að þeim sótt að þá er alltaf gripið til þess ráðs að segja að hlutirnir hafi verið enn verri í tíð fyrri ríkisstjórnar. En, að blanda þessu stóra og grafalvarlega Lekamáli, þar sem lögreglurannsókn kom til og ráðherra sagði af sér vegna, saman við eitthvað svona óútskýrt tal – það er auðvitað alveg dæmalaust. Og af engu hafandi fyrr en maðurinn mannar sig þá uppí að tala þá einu sinni þannig að hægt er að mæta honum með rökum. Þegar hann nefnir þá dæmin og færir rök fyrir þessari fráleitu fullyrðingu, þá er hægt að tala við hann. Fyrr ekki,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. Vísir reyndi að ná tali af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni til að inna hann nánar eftir þessum ummælum, og þá með það fyrir augum að fá fram dæmi, en ekki tókst að ná tali af forsætisráðherra.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira