Gekk nakinn á næsta bæ til að bjarga konu sinni og tengdamömmu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 2. janúar 2015 13:35 Vífill og konurnar tvær voru í húsinu Bjargi í Eyjafjarðasveit þegar eldurinn kom upp. Vísir/Stefán
Vífill Valgeirsson þurfti að hlaupa nakinn á næsta bæ til að bjarga konu sinni og tengdamóður úr brennandi húsi aðfaranótt aðfangadags í Eyjafjarðasveit. Allir komust stórslysalaust út úr húsinu með hjálp slökkviliðs en kona hans þurfti að eyða jólunum á spítala vegna reykeitrunar. Vísir fjallaði um málið á aðfangadag en RÚV greindi fyrsta frá aðstæðum í morgun.Hér má sjá hvar Bjarg er staðsett á landinu.Vísir/Loftmyndir„Það kviknaði þarna í út frá þurrkofn sem við vorum með. Við vorum farin að sofa en sem betur fer vaknaði ég og komst út. Ég hljóp á næsta bæ þar sem ég gat hringt á slökkviliðið,“ segir Vífill aðspurður um atburði næturinnar. Hann segir að slökkvilið hafi komið fljótt og bjargað konunum út. „Þegar ég kemst út í súrefnið skellist hurðin á eftir mér og hún er læst. Ég náði svo að brjóta glugga í hurðinni til að opna,“ segir hann en þá tók eldurinn á móti honum. „Hitinn var svo mikill að ég komst hvorki upp né niður og það var eina leiðin að fara á næsta bæ.“ Vífill og konurnar tvær voru í húsinu Bjargi í Eyjafjarðasveit þegar eldurinn kom upp. Húsið er mjög illa farið eftir eldinn og er neðri hæð hússins ónýt, að sögn Vífils. „Ég kallaði á hana og tók eitthvað í hana en í fátinu hef ég ekki gert nóg. Hún var sofandi,“ segir Vífill aðspurður um hina sem voru í húsinu. „Þetta endaði allt mjög vel. Við erum öll að koma til heilsu. Konan mín var þarna lengst inni og hún fékk einhvern snert af reykeitrun en hún er öll að ná sér og komin heim og allt í góðu lagi.“
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira